Psalms 121
1Ég horfi til fjallanna, þar sem Jerúsalem rís. Hvaðan skyldi ég fá hjálp? 2Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar! 3– 4Hann mun aldrei láta mig hrasa eða falla. Hann gætir mín öllum stundum og sefur ekki á verðinum. 5Sjálfur Drottinn gætir þín! Hugleiddu það! Hann verndar þig gegn öllu illu og er þér alltaf nær. 6Hann verndar þig jafnt daga sem nætur. 7Hann frelsar þig frá illu og heldur í þér lífinu. 8Hann hefur augun á þér hvort sem þú gengur út eða inn, já hann varðveitir þig alla daga og að eilífu.
Copyright information for
IslLO