‏ Psalms 122

1Ég varð glaður þegar sagt var við mig: „Komdu! Förum í musterið, hús Drottins!“

2 3Við erum stödd í Jerúsalem og borgin er full af fólki. 4Allur Ísrael – þjóð Drottins – er kominn til að tilbiðja og lofa Drottin samkvæmt reglu lögmálsins. 5Sjáið! Þarna eru dómararnir í borgarhliðinu, þeir skera úr deilumálum fólksins.

6Biðjið þess að friður haldist í Jerúsalem og að þeir sem hana elska njóti heilla og hamingju. 7Ég bið að friður ríki umhverfis þig og hagsæld sé í höllum þínum, 8já, vegna bræðra minna og vina sem hér búa. 9Ég bið um hamingju þér til handa, Jerúsalem, vegna musteris Drottins sem í þér er.
Copyright information for IslLO