‏ Psalms 125

1Þeir sem treysta Drottni eru eins og Síonfjall, þeir haggast ekki.

2Fjöllin umhverfis Jerúsalem eru henni til verndar, eins er Drottinn, hann umlykur og verndar sitt fólk. 3Ekki skulu óguðlegir drottna yfir trúuðum, né réttlátir þvingaðir til illverka.

4Ó, Drottinn, gerðu vel við þá sem góðir eru, þá sem leitast við að gera vilja þinn, en útrýmdu illgjörðamönnum. Láttu frið og velgengni ríkja í Ísrael.
Copyright information for IslLO