Psalms 126
1Þegar Drottinn flutti þjóð sína aftur til Jerúsalem, heim úr herleiðingunni, þá héldum við að okkur væri að dreyma! 2Við sungum og hlógum af gleði. Þá sögðu heiðnu þjóðirnar: „Drottinn hefur gert ótrúlega hluti fyrir þá!“ 3Já, undursamlega hluti! Hvílíkt undur! Hvílík gleði! 4Hresstu okkur nú Drottinn, já gefðu okkur kröftuga gróðrarskúr! 5Þeir sem sá með tárum skulu uppskera með gleðisöng. 6Grátandi bera þeir sæðið til sáningar, en syngjandi koma þeir aftur og bera kornbindin heim!
Copyright information for
IslLO