‏ Psalms 130

1Ó, Drottinn, ég er í nauðum staddur, heyrðu hróp mitt! 2Hlustaðu á mig! Svaraðu og hjálpaðu mér!

3 4Drottinn, ef þú rifjaðir sífellt upp syndir okkar, hver fengi þá staðist? En þú fyrirgefur! Getum við annað en óttast þig og elskað? 5Og þess vegna bið ég og vona og treysti hjálp Guðs, því að hann hefur lofað að hjálpa. 6Næturverðirnir þrá nýjan dag, en ég þrái Drottin enn meira!

7Ísrael, treystu Drottni því að hann er góður og miskunnsamur og veitir gnægð lausnar. 8Hann mun sjálfur leysa Ísrael frá öllum misgjörðum hans.
Copyright information for IslLO