Psalms 132
1Manst þú, Drottinn, allar þjáningar Davíðs? 2– 3– 4– 5 ▼▼Texti vers(s) 5 hefur verið sameinaður þessu versi.
▼▼Texti vers(s) 5 hefur verið sameinaður þessu versi.
▼▼Texti vers(s) 5 hefur verið sameinaður þessu versi.
Hann náði ekki að hvílast, kom ekki dúr á auga. Þá kom honum í hug að reisa hús yfir örk þína, musteri fyrir hinn volduga í Ísrael. Og hann hét því að svo skyldi verða og sór hátíðlegan eið fyrir Drottni. 6Fyrst var örkin í Síló í Efrata og síðan í Jaar. 7Nú fær hún stað í musterinu, bústað Guðs hér á jörð. Þar munum við falla fram og tilbiðja hann. 8Rís þú upp, Drottinn! Gakktu inn í musteri þitt ásamt örk þinni, tákni máttar þíns! 9Við munum íklæða prestana hvítum skrúða, klæðum hreinleikans. Og þjóðin mun hrópa fagnaðaróp! 10Vísaðu Davíð þjóni þínum ekki frá – konunginum sem þú útvaldir handa þjóð þinni. 11Þú lofaðir Davíð því að sonur hans yrði eftirmaður hans, skyldi erfa hásætið. Vissulega munt þú aldrei ganga á bak orða þinna! 12Og annað fyrirheit gafstu Davíð líka: Ef afkomendur hans héldu ákvæði sáttmála þíns við þig, þá mundi konungdómurinn haldast í ætt Davíðs að eilífu. 13Ó, Drottinn, þú hefur útvalið Jerúsalem að bústað þínum. 14„Þetta er hvíldarstaður minn um aldur og ævi,“sagðir þú, „staðurinn sem ég hef þráð. 15Borg þessa vil ég blessa og auðga og fátæklingar hennar fá nóg að borða. 16Presta hennar mun ég íklæða hjálpræði, og hinir trúuðu er þar búa munu hrópa fagnaðaróp. 17Veldi Davíðs mun aukast, og ég mun gefa honum son, eftirmann í hásæti hans. 18Ég hyl óvini hans skömm, en á honum skal kóróna hans ljóma.“
Copyright information for
IslLO