Psalms 140
1 ▼▼140:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼140:1 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, frelsaðu mig frá vondum mönnum. Verndaðu mig gegn ofbeldismönnunum 3 ▼▼140:2 í flestum biblíum.
sem sitja á svikráðum alla daga og vekja ófrið. 4 ▼▼140:3 í flestum biblíum.
Orð þeirra eru eins og eitruð höggormsbit. 5 ▼▼140:4 í flestum biblíum.
Varðveittu mig gegn ofbeldi þeirra og svikráðum. 6 ▼▼140:5 í flestum biblíum.
Þessir ofríkismenn hafa lagt gildru fyrir mig, sett út snöru sína. Þeir bíða þess að geta kastað yfir mig neti, flækja mig í möskva sína. 7 ▼▼140:6 í flestum biblíum.
– 8 ▼▼140:7 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, þú ert minn Guð! Hlustaðu á grátbeiðni mína! Láttu ekki svikráð níðinganna heppnast. 9 ▼▼140:8 í flestum biblíum.
Láttu þá ekki ná árangri eða hreykja sér hátt. 10 ▼▼140:9 í flestum biblíum.
Svikráð þeirra komi þeim sjálfum í koll! 11 ▼▼140:10 í flestum biblíum.
Eldsglóðum rigni yfir þá. Steyptu þeim í gjár sem þeir komast ekki úr. 12 ▼▼140:11 í flestum biblíum.
Láttu lygara einskis ávinnings njóta í landi okkar, en refsaðu þeim í skyndi. 13 ▼▼140:12 í flestum biblíum.
Drottinn mun örugglega rétta hlut fólks sem þolað hefur ofsóknir þeirra, hann mun flytja mál hinna snauðu. 14 ▼▼140:13 í flestum biblíum.
Hinir guðhræddu þakka þér. Þeir fá að lifa í nálægð þinni.
Copyright information for
IslLO