Psalms 146
1Dýrð sé Guði! Já, ég vil vegsama hann! 2Ég vil lofa hann á meðan ég lifi, vegsama hann fram á síðustu stund. 3Reiddu þig ekki á hjálp valdsmanna, því að þeir falla og ekkert verður úr aðstoð þeirra. 4Þeir munu deyja og andi þeirra líður burt, áform þeirra verða að engu. 5En sæll er sá maður sem reiðir sig á hjálp Guðs, Guðs Jakobs, sem vonar á Drottin, Guð sinn 6– þann Guð sem skapaði himin og jörð og hafið og allt sem í því er. Hann er sá Guð sem óhætt er að treysta! 7Hann leitar réttar fátækra og kúgaðra og gefur hungruðum brauð. Hann frelsar fanga, 8opnar augu blindra, lyftir okinu af þeim sem eru að bugast. Drottinn elskar þá sem gera rétt. 9Hann verndar útlendingana sem sest hafa að í landinu og gætir réttinda ekkna og einstæðinga, en ónýtir ráðabrugg vondra manna. 10Drottinn mun ríkja að eilífu. Jerúsalem, veistu að Drottinn er konungur að eilífu?! Hallelúja!
Copyright information for
IslLO