‏ Psalms 148

1Þið sem búið á himnum, lofið Drottin! Lofið hann í upphæðum!

2Lofið hann allir englar, allar hersveitir himnanna. 3Lofið hann sól og tungl og allar lýsandi stjörnur. 4Lofið hann hæstu himnar og þú dögg er svífur um háloftin.

5Allt sem hann hefur skapað lofi nafn hans, því að þegar hann talaði, þá varð það allt til, 6hann fékk þeim stað um aldur og ævi, setti þeim lögmál sem þau fá ekki brotið.

7Lofið Drottin einnig á jörðu, líka þið skepnur í hafdjúpunum. 8Eldur og hagl, snjór, regn, vindur og veður öll, – allt hlýði það Drottni. 9Allt skal þetta lofa Drottin: fjöll og hæðir, ávaxtatré sem önnur tré, 10villidýr og búfé, höggormar og fuglar 11konungar og allar þjóðir, höfðingjar og dómarar, 12piltar og stúlkur, aldraðir og börn. 13Sameiginlega skulu þau lofa Drottin, því að hann einn er þess verður og dýrð hans er ofar himni og jörðu. 14Hann hefur gert þjóð sína volduga. Heldur uppi heiðri hinna guðhræddu – lýðs Ísraels, þjóðarinnar sem honum stendur næst. Hallelúja! Dýrð sé Drottni!
Copyright information for IslLO