‏ Psalms 17

Bæn Davíðs

1Drottinn, ó hjálpa þú mér, því að ég er heiðvirður og breytni mín réttlát. Hlustaðu þegar ég hrópa til þín! 2Úrskurða mig réttlátan svo að allir heyri, þú réttvísi Drottinn. 3Þú hefur prófað mig, já jafnvel um nætur, en engar illar hugsanir fundið hjá mér, né vond orð mér á vörum.

4Boðorðum þínum hef ég hlýtt og forðast félagsskap við illmenni og rudda. 5Ég hef fylgt leiðsögn þinni og ekki farið villur vegar. 6Ég ákalla þig því að ég veit að þú svarar mér! Já, hlustaðu á bæn mína. 7Sýndu mér kærleika þinn og náð, þú sem frelsar hina ofsóttu. 8Vernda mig eins og sjáaldur augans. Hyl mig í skjóli vængja þinna.

9Óvinir mínir umkringja mig með morðsvip í augum. 10Þeir eru óguðlegir og beita mig ofbeldi. Hlustaðu á tal þeirra! Hvílíkur hroki! 11Þeir koma nær og nær, ákveðnir í að troða mig undir. 12Þeir líkjast gráðugum ljónum sem vilja rífa mig á hol – ungum ljónum sem liggja í leyni og bíða eftir bráð.

13 14Drottinn, rís þú upp og hastaðu á þá! Rektu þá frá! Komdu og frelsaðu mig frá hinum óguðlegu sem aðeins leita jarðnesks ávinnings, þeim sem þú hefur gefið auð og völd og ótal afkomendur.

15En ég sækist ekki eftir veraldlegum auði, heldur því að þekkja þig og lifa réttvíslega – vera sáttur við þig. Ég vil hugsa um þig jafnt á degi sem nóttu og þegar ég vakna mun ég sjá auglit þitt og gleðjast!
Copyright information for IslLO