‏ Psalms 18

1
18:1 í sumum biblíum.
Þennan sálm orti Davíð eftir að Drottinn hafði frelsað hann undan óvinum hans, þeirra á meðal Sál konungi.

2
18:1 í flestum biblíum.
Drottinn – ég elska þig! Þú hefur gert stórkostlega hluti fyrir mig!
3
18:2 í flestum biblíum.
Drottinn er vígi mitt, þar er ég öruggur. Enginn getur veitt mér eftirför og unnið á mér. Hann er felustaður minn, frelsari og varðborg, kletturinn þar sem enginn getur náð mér! Hann er skjöldur minn. Styrkur hans er eins og uxans sem mundar horn sín í vígahug!
4
18:3 í flestum biblíum.
Mér nægir að ákalla hann – lof sé Guði! – og ég frelsast undan öllum óvinum mínum.

5
18:4 í flestum biblíum.
Ég var bundinn hlekkjum dauðans og holskeflur óguðlegra risu ógnandi gegn mér.
6
18:5 í flestum biblíum.
Umkringdur og hjálparvana barðist ég um í netinu sem dró mig niður í djúp dauðans.

7
18:6 í flestum biblíum.
Þá hrópaði ég til Drottins. – Hróp mitt náði eyrum hans á himnum!
8
18:7 í flestum biblíum.
Þá lyftist jörðin og nötraði og undirstöður fjallanna skulfu vegna bræði hans. Hvílíkur landskjálfti! Já, Drottinn reiddist.
9
18:8 í flestum biblíum.
Eldsblossar gengu út af munni hans svo að jörðin sviðnaði og reykur streymdi um nasir hans.
10
18:9 í flestum biblíum.
Hann sveigði himininn og steig niður mér til bjargar! Skýjasorti var undir fótum hans.
11
18:10 í flestum biblíum.
Hann steig á bak kerúbi og sveif til mín með hraða vindsins.
12
18:11 í flestum biblíum.
Hann skýldi sér með myrkri, leyndi komu sinni með regnsorta og dimmu skýi.
13
18:12 í flestum biblíum.
En svo birtist hann í skýjunum! Hvílík hátign! Eldingar leiftruðu og haglið dundi!

14
18:13 í flestum biblíum.
Himnarnir nötruðu í þrumugný Drottins. Guð allra guða hafði talað!
15
18:14 í flestum biblíum.
Hann sendi út eldingar sínar sem örvar og tvístraði óvinum mínum. Sjá, hvernig þeir flýðu!
16
18:15 í flestum biblíum.
Þá hljómaði skipun Drottins – og hafið hopaði og það sá í mararbotn!

17
18:16 í flestum biblíum.
Þá seildist Drottinn niður frá himnum, greip mig og frelsaði mig úr neyðinni. Hann bjargaði mér úr hyldýpi dauðans.

18
18:17 í flestum biblíum.
Hann frelsaði mig frá ofurafli óvinarins, úr höndum þeirra sem hötuðu mig, því í greipum þeirra mátti ég mín einskis.

19
18:18 í flestum biblíum.
Þeir réðust á mig þegar ég mátti mín einskis, en Drottinn studdi mig.
20
18:19 í flestum biblíum.
Hann leiddi mig í öruggt skjól, því að hann hefur velþóknun á mér.
21
18:20 í flestum biblíum.
Drottinn launaði mér réttlæti mitt og hreinleika.
22
18:21 í flestum biblíum.
Því að ég hef hlýtt boðorðum hans og ekki syndgað með því að snúa í hann baki.
23
18:22 í flestum biblíum.
Ég gætti lögmáls hans í hvívetna og lítilsvirti enga grein þess.
24
18:23 í flestum biblíum.
Ég lagði mig fram við að halda það og forðaðist ranglæti.
25
18:24 í flestum biblíum.
Þess vegna hefur Drottinn launað mér með blessun, því að ég gerði það sem rétt var og gætti hreinleika hjarta míns. Allt þetta þekkti hann, enda vakir hann yfir hverju skrefi mínu.

26
18:25 í flestum biblíum.
Drottinn, þú miskunnar þeim sem auðsýna miskunn og ert góður við ráðvanda.
27
18:26 í flestum biblíum.
Þú blessar hjartahreina en snýrð þér frá þeim sem yfirgefa þig.
28
18:27 í flestum biblíum.
Þú hlífir hinum hógværu, en ávítar stolta og hrokafulla.
29
18:28 í flestum biblíum.
Já, þú lætur lampa minn skína. Drottinn, Guð minn, hefur lýst upp myrkrið sem umlukti mig.
30
18:29 í flestum biblíum.
Með þinni hjálp stekk ég yfir múra og brýt niður borgarveggi óvinarins.

31
18:30 í flestum biblíum.
Drottinn, hann er mikill Guð! Fullkominn í öllum hlutum! Orð hans standast öll. Skjöldur er hann öllum þeim sem til hans leita.
32
18:31 í flestum biblíum.
Því hver er hinn sanni Guð nema Drottinn? Og hver er bjargið nema hann?

33
18:32 í flestum biblíum.
Hann styrkir mig og verndar hvar sem ég fer.
34
18:33 í flestum biblíum.
Hann gerir fætur mína fima sem geitanna á fjöllunum. Hann tryggir mér fótfestu á hæstu tindum.
35
18:34 í flestum biblíum.
Hann æfir hendur mínar til hernaðar og gerir mér kleift að spenna eirbogann.

36
18:35 í flestum biblíum.
Þú fékkst mér skjöld hjálpræðis þíns. Hægri hönd þín, Drottinn, styður mig, mildi þín hefur gert mig mikinn.
37
18:36 í flestum biblíum.
Þú lagðir veg fyrir fætur mína og þar mun ég ekki hrasa.
38
18:37 í flestum biblíum.
Ég veitti óvinum mínum eftirför, elti þá uppi og eyddi þeim.
39
18:38 í flestum biblíum.
Ég tók þá einn af öðrum – þeir gátu enga vörn sér veitt – allir lágu í valnum að lokum.
40
18:39 í flestum biblíum.
Hjálpin frá þér var eins og brynja í bardaganum. Óvini mína beygðir þú undir mig.
41
18:40 í flestum biblíum.
Þú stökktir þeim á flótta og ég eyddi öllum þeim sem ofsóttu mig.

42
18:41 í flestum biblíum.
Þeir hrópuðu á hjálp, en fengu enga. Þeir æptu til Drottins, en hann ansaði ekki,
43
18:42 í flestum biblíum.
en ég muldi þá mélinu smærra og dreifði þeim upp í vindinn. Ég fleygði þeim burt eins og rusli á haug.
44
18:43 í flestum biblíum.
45
18:44 í flestum biblíum.
46
18:45 í flestum biblíum.
Texti vers(s) 46 hefur verið sameinaður þessu versi.
Texti vers(s) 46 hefur verið sameinaður þessu versi.
Þú veittir mér sigur í sérhverri orustu. Þjóðirnar komu og þjónuðu mér. Jafnvel þær sem ég þekkti ekki komu nú og veittu mér lotningu. Útlendingar sem aldrei höfðu mig augum litið lýstu sig reiðubúna til þjónustu. Skjálfandi stigu þeir niður úr virkjum sínum.

47
18:46 í flestum biblíum.
Guð lifir! Lofaður sé hann, klettur hjálpræðis míns.
48
18:47 í flestum biblíum.
Hann er sá Guð sem endurgeldur þeim sem ofsækja mig og auðmýkir þjóðir fyrir augum mér.

49
18:48 í flestum biblíum.
Hann frelsar mig frá óvinum mínum. Hann sér til þess að þeir ná ekki til mín og bjargar mér undan öflugum andstæðingum.

50
18:49 í flestum biblíum.
Fyrir þetta, Drottinn minn, lofa ég þig í áheyrn þjóðanna.
51
18:50 í flestum biblíum.
Oftsinnis hefur þú frelsað mig – það var kraftaverk í öll skiptin! Þú gerðir mig að konungi, þú hefur elskað mig og auðsýnt mér gæsku og eins muntu gera við afkomendur mína.
Copyright information for IslLO