‏ Psalms 19

1
19:1 í sumum biblíum.
2
19:1 í flestum biblíum.
Himnarnir sýna okkur dýrð Guðs. Þeir eru þögull vitnisburður um mikilleik verka hans.
3
19:2 í flestum biblíum.
Dagur og nótt vitna um vísdóm Drottins.
4
19:3 í flestum biblíum.
5
19:4 í flestum biblíum.
Hljóðlaust og án orða bera þau boðin um gervalla jörðina. Sólin fer sína braut um loftin – einmitt þá sem Drottinn setti henni í upphafi.
6
19:5 í flestum biblíum.
Hnarreist siglir hún yfir hvolfið, geislandi eins og brúður í brúðkaupi eða hlaupari sem hlakkar til að renna sitt skeið.
7
19:6 í flestum biblíum.
Sólin fer um himininn frá austri til vesturs, ekkert fær dulist við geislaflóð hennar og yl.

8
19:7 í flestum biblíum.
9
19:8 í flestum biblíum.
Lög Guðs eru fullkomin. Þau vernda og auka skilning, gleðja og lýsa.
10
19:9 í flestum biblíum.
Lög Guðs eru eilíf, réttlát og hrein.
11
19:10 í flestum biblíum.
Þau eru dýrmætari en gull. Þau eru sætari en hunang.
12
19:11 í flestum biblíum.
Því að þau vara okkur við hættum og efla velgengni þeirra sem hlýða þeim.

13
19:12 í flestum biblíum.
Hver verður var við syndina sem loðir við hjarta mitt? Hreinsa mig af leyndum syndum.
14
19:13 í flestum biblíum.
Forða mér frá vondum mönnum, og stöðva hönd mína að ég geri ekkert ljótt. Sýknaðu mig af syndum mínum svo að ég lifi hreinu lífi.

15
19:14 í flestum biblíum.
Ó, að orðin á vörum mér og hugsanir mínar geðjist þér, þú Guð, klettur minn og frelsari.
Copyright information for IslLO