Psalms 22
1 ▼▼22:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼22:1 í flestum biblíum.
Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig? Hví ert þú þögull og hjálpar ekki þegar ég hrópa til þín í neyð minni? 3 ▼▼22:2 í flestum biblíum.
Daga og nætur græt ég og ákalla þig, en fæ ekkert svar! 4 ▼▼22:3 í flestum biblíum.
– 5 ▼▼22:4 í flestum biblíum.
– En samt ert þú hinn heilagi og lofsöngvar Ísraels óma umhverfis hásæti þitt. Feðurnir treystu þér og þú frelsaðir þá. 6 ▼▼22:5 í flestum biblíum.
Þú heyrðir er þeir hrópuðu til þín, brást við og bjargaðir þeim. Vonir þeirra brugðust ekki þegar þeir leituðu til þín. 7 ▼▼22:6 í flestum biblíum.
En ég er maðkur en ekki maður! Hræddur og fyrirlitinn af minni eigin þjóð – já öllum mönnum. 8 ▼▼22:7 í flestum biblíum.
Þeir sem sjá mig hrista höfuðið og senda mér tóninn. 9 ▼▼22:8 í flestum biblíum.
„Er þetta sá sem treysti Drottni fyrir málum sínum?“segja þeir og hlæja. „Sá sem taldi sig öruggan um velþóknun Guðs? Því trúum við ekki fyrr en við sjáum Drottin hjálpa honum.“ 10 ▼▼22:9 í flestum biblíum.
– 11 ▼▼22:10 í flestum biblíum.
– 12 ▼▼22:11 í flestum biblíum.
▼▼Texti vers(s) 12 hefur verið sameinaður þessu versi.
▼▼Texti vers(s) 12 hefur verið sameinaður þessu versi.
Drottinn, oft hefur þú hjálpað mér. Móðir mín fæddi mig heilbrigðan í heiminn og þar varst þú til staðar og gættir mín, eins og öll mín bernskuár. Frá fæðingu hef ég átt allt undir þér. Þú varst minn Guð allt frá fyrstu stundu. Yfirgef mig ekki nú, nei ekki núna á neyðarstundu þegar enginn getur hjálpað nema þú! 13 ▼▼22:12 í flestum biblíum.
Ég er umkringdur illmennum. Þeir líkjast sterkum basan – uxum. 14 ▼▼22:13 í flestum biblíum.
Þeir æða að mér með opinn skoltinn, eins og öskrandi ljón sem ræðst á bráðina. 15 ▼▼22:14 í flestum biblíum.
Þrek mitt fjaraði út, rann út í sandinn og bein mín gliðnuðu sundur. Hjartað er bráðnað í brjósti mér 16 ▼▼22:15 í flestum biblíum.
og tungan þurr eins og brenndur leir. Þú lætur mig horfast í augu við dauðann. 17 ▼▼22:16 í flestum biblíum.
Hópur illvirkja hefur umkringt mig. Eins og hundar slá þeir hring um mig. Hendur mínar og fætur hafa þeir gegnumstungið. 18 ▼▼22:17 í flestum biblíum.
Ég get talið öll mín bein. Þeir stara á mig og senda mér háðsglósur. 19 ▼▼22:18 í flestum biblíum.
Þeir skipta á milli sín klæðum mínum og varpa hlutkesti um kyrtil minn. 20 ▼▼22:19 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, vertu ekki fjarri! Drottinn, styrkur minn, skunda mér til hjálpar! 21 ▼▼22:20 í flestum biblíum.
Bjargaðu mér frá dauða, frá því að falla fyrir hendi kúgarans. 22 ▼▼22:21 í flestum biblíum.
Frelsaðu mig úr gini þessara varga, undan hornum uxanna! 23 ▼▼22:22 í flestum biblíum.
Ég vil lofa þig meðal bræðra minna, standa upp í söfnuðinum og vitna um þín undursamlegu verk. 24 ▼▼22:23 í flestum biblíum.
Ég segi: „Lofið Drottin, allir þið sem óttist hann, hver og einn ykkar heiðri hann og tigni. Allur Ísrael lofsyngi honum, 25 ▼▼22:24 í flestum biblíum.
því að hann hefur ekki fyrirlitið ákall mitt um hjálp, ekki snúið við mér baki í eymd minni. Hann heyrði hróp mitt og kom!“ 26 ▼▼22:25 í flestum biblíum.
Ég vil rísa á fætur og vegsama þig fyrir augum þjóðar minnar. Heit mín vil ég efna í áheyrn allra þeirra sem elska þig og heiðra. 27 ▼▼22:26 í flestum biblíum.
Fátæklingurinn mun eta sig saddan og allir þeir sem leita Drottins munu finna hann og vegsama nafn hans. Hjörtu þeirra munu fagna að eilífu. 28 ▼▼22:27 í flestum biblíum.
Öll jörðin mun sjá það og snúa sér til Drottins, og fólk af öllum þjóðum mun vegsama hann. 29 ▼▼22:28 í flestum biblíum.
Því að Drottinn er konungur yfir öllum þjóðum. 30 ▼▼22:29 í flestum biblíum.
Jafnt háir sem lágir, allir dauðlegir menn, lúti honum og lofi hann. 31 ▼▼22:30 í flestum biblíum.
Og börnin okkar, – einnig þau munu þjóna honum því þau hafa heyrt vitnisburð okkar um hann. 32 ▼▼22:31 í flestum biblíum.
Ófæddar kynslóðir munu heyra um máttarverk hans okkar á meðal.
Copyright information for
IslLO