Psalms 25
1Drottinn, ég sendi bæn mína upp til þín. 2Hafnaðu mér ekki, Drottinn, því að ég treysti þér. Láttu ekki óvini mína yfirbuga mig. Láttu þá ekki vinna sigur. 3Sá sem treystir Drottni, mun ekki verða til skammar en hinir ótrúu verða það. 4Drottinn, sýndu mér þann veg sem ég á að ganga, bentu mér á réttu leiðina. 5Leiddu mig og kenndu mér því að þú ert sá eini Guð sem getur hjálpað. Á þig einan vona ég. 6– 7Drottinn, minnstu ekki æskusynda minna. Líttu til mín miskunnaraugum og veittu mér náð. Minnstu mín í elsku þinni og gæsku, Drottinn minn. 8Drottinn er góður og fús að vísa þeim rétta leið, sem villst hafa. 9Hann sýnir þeim rétta leið sem leita hans með auðmjúku hjarta. 10Þeir sem hlýða Drottni fá að ganga á hans vegum og upplifa elsku hans og trúfesti. 11En Drottinn, hvað um syndir mínar? Æ, þær eru svo margar! Fyrirgef þú mér vegna elsku þinnar og nafni þínu til dýrðar. 12Sá maður sem óttast Drottin – heiðrar hann og hlýðir honum – mun njóta leiðsagnar Guðs í lífinu. 13Hann verður gæfumaður og börn hans erfa landið. 14Drottinn sýnir trúnað og vináttu þeim sem óttast hann. Hann trúir þeim fyrir leyndarmálum sínum! 15Ég mæni á Drottin í von um hjálp, því að hann einn getur frelsað mig frá dauða. 16Kom þú, Drottinn, og miskunna mér, því að ég er hrjáður og hjálparlaus og 17vandi minn fer stöðugt vaxandi. Ó, frelsaðu mig úr neyð minni! 18Líttu á eymd mína og sársauka og fyrirgefðu mér syndir mínar! 19Sjáðu óvini mína og hve þeir hata mig! 20Frelsaðu mig frá þessu öllu! Bjargaðu mér úr klóm þeirra! Láttu engan segja að ég hafi treyst þér án árangurs. 21Láttu hreinskilni og heiðarleika vernda mig – já vera lífverði mína! Ég reiði mig á vernd þína. 22Ó, Guð, frelsa þú Ísrael úr öllum nauðum hans.
Copyright information for
IslLO