Psalms 3
1Sálmur eftir Davíð þegar hann flúði frá Absalon, syni sínum. 2Ó, Drottinn, það eru svo margir á móti mér, svo margir sem gera uppreisn gegn mér. 3Menn segja að Guð muni alls ekki hjálpa mér. 4En, Drottinn, þú ert skjöldur minn, sæmd mín og von. Þú lætur mig bera höfuðið hátt, þrátt fyrir allt. 5Ég hrópaði til Drottins og hann svaraði mér frá musteri sínu í Jerúsalem. 6Þá lagðist ég fyrir og sofnaði í friði. Síðar vaknaði ég öruggur, því að Drottinn gætir mín. 7Nú er ég óhræddur, jafnvel þótt tíu þúsund óvinir umkringi mig! 8Ég mun hrópa til Drottins: „Drottinn, rís þú upp! Bjargaðu mér, þú Guð minn!“Og hann mun slá óvini mína og brjóta tennur illvirkjanna. Hjálpin kemur frá Guði. Blessun hans hvílir yfir þjóð hans.
Copyright information for
IslLO