Psalms 31
1 ▼▼31:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼31:1 í flestum biblíum.
Drottinn, þér einum treysti ég. Láttu ekki óvini mína yfirbuga mig. Bjargaðu mér, því að þú ert réttlátur í öllum hlutum. 3 ▼▼31:2 í flestum biblíum.
Svara mér í skyndi, nú þegar ég hrópa til þín. Beygðu þig niður að mér og hlustaðu á bæn mína. Vertu mér verndarbjarg, skjól fyrir óvinum. 4 ▼▼31:3 í flestum biblíum.
Já, þú ert klettur minn og vígi, sýndu mátt þinn og gerðu nafn þitt dýrlegt og bjargaðu mér. 5 ▼▼31:4 í flestum biblíum.
Forða fæti mínum frá snörunni sem óvinir mínir hafa lagt fyrir mig. Þú einn getur frelsað mig. 6 ▼▼31:5 í flestum biblíum.
Í þínar hendur fel ég anda minn. Þú, Guð, sem stendur við öll þín orð, þú hefur bjargað mér. Þig einan lofa ég. 7 ▼▼31:6 í flestum biblíum.
Ég hata alla þá sem dýrka fánýt falsgoð en Drottni treysti ég. 8 ▼▼31:7 í flestum biblíum.
Ég gleðst mjög, því að þú hefur miskunnað mér, þú gafst gaum að þrengingum mínum og sálarneyð. 9 ▼▼31:8 í flestum biblíum.
Þú framseldir mig ekki óvinum mínum, heldur rýmkaðir um mig á alla vegu. 10 ▼▼31:9 í flestum biblíum.
– 11 ▼▼31:10 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, miskunna mér í neyð minni. Augu mín eru grátbólgin, heilsa mín brostin af sorg. 12 ▼▼31:11 í flestum biblíum.
Ár mín líða í harmi, hryggðin styttir ævi mína. Syndirnar draga úr mér allan þrótt. Hokinn stend ég – sneyptur af skömm. Óvinirnir spotta mig og nágrannarnir hæða mig. Óhug slær að vinum mínum. Þeir, jafnvel þeir, forðast að mæta mér og líta undan þegar ég geng hjá. 13 ▼▼31:12 í flestum biblíum.
Ég er gleymdur eins og líkið í gröf sinni – eins og brotið ker sem fleygt hefur verið á haug. 14 ▼▼31:13 í flestum biblíum.
Ég frétti hvað um mig var sagt – um baktal óvina minna. Ógn og skelfing var hvert sem ég leit, svik og prettir í öllum hornum! 15 ▼▼31:14 í flestum biblíum.
– 16 ▼▼31:15 í flestum biblíum.
En Drottinn, þér treysti ég! Ég sagði: „Þú einn ert minn Guð,“þú ákveður ævilengd mína. Frelsaðu mig Drottinn, undan þeim sem ofsækja mig. 17 ▼▼31:16 í flestum biblíum.
Láttu velþóknun þína aftur verða augljósa á þjóni þínum. Frelsa mig því að þú ert góður! 18 ▼▼31:17 í flestum biblíum.
Drottinn, láttu mig ekki verða til skammar þegar ég ákalla þig um hjálp. Láttu illmennin blygðast sín fyrir það sem þau treysta á. Já, sendu þá sneypta og þegjandi í gröfina 19 ▼▼31:18 í flestum biblíum.
lygarana sem ásaka réttláta með hroka og fyrirlitningu. 20 ▼▼31:19 í flestum biblíum.
Mikil er miskunn þín við þá sem treysta þér og vitna um trúfesti þína, þá sem elska þig og heiðra í augsýn annarra. 21 ▼▼31:20 í flestum biblíum.
Vertu ástvinum þínum skjól gegn svikráðum manna, verndaðu þá fyrir illum tungum. 22 ▼▼31:21 í flestum biblíum.
Lofaður sé Drottinn, því að hann hefur sýnt mér dásamlega náð og verndað mig gegn illu. 23 ▼▼31:22 í flestum biblíum.
Í fljótfærni sagði ég: „Drottinn hefur yfirgefið mig.“En hann heyrði samt bæn mína og svaraði mér! 24 ▼▼31:23 í flestum biblíum.
Elskið Drottin, öll þið sem honum treystið, því að Drottinn verndar trúfasta, en refsar harðlega þeim sem hafna honum í hroka. 25 ▼▼31:24 í flestum biblíum.
Verið því glöð og hughraust, öll þið sem vonið á Drottin!
Copyright information for
IslLO