‏ Psalms 34

1
34:1 í sumum biblíum.
2
34:1 í flestum biblíum.
Ég vil lofa Drottin öllum stundum, vegsama hann seint og snemma.
3
34:2 í flestum biblíum.
Ég hrósa mér af Drottni. Hinir hógværu hlusta og öðlast nýjan kjark.
4
34:3 í flestum biblíum.
Lofið Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans.

5
34:4 í flestum biblíum.
Ég hrópaði til hans og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því sem ég hræddist.
6
34:5 í flestum biblíum.
Lítið til hans og gleðjist og þið munuð ekki verða til skammar.

7
34:6 í flestum biblíum.
Ég var vesæll og aumur, en ég hrópaði til Drottins. Drottinn heyrði hróp mitt og frelsaði frá öllu því sem ég hræddist.
8
34:7 í flestum biblíum.
Engill Drottins stendur vörð um þá sem óttast hann, og hann bjargar þeim.

9
34:8 í flestum biblíum.
Finndu og sjáðu hve Guð er góður! Sæll er sá sem leitar hælis hjá honum.
10
34:9 í flestum biblíum.
Treystið Drottni og sýnið honum lotningu – óttist hann – því að þeir sem óttast hann líða engan skort.
11
34:10 í flestum biblíum.
Ung ljón búa við skort en þeir sem leita Drottins fara einskis góðs á mis.

12
34:11 í flestum biblíum.
Börnin góð, komið og ég mun kenna ykkur að óttast Drottin. Það er mikilvægt.
13
34:12 í flestum biblíum.
Viljið þið lifa langa og góða ævi?
14
34:13 í flestum biblíum.
Gætið þá tungu ykkar! Segið aldrei ósatt orð.
15
34:14 í flestum biblíum.
Haldið ykkur frá öllu illu og ástundið það sem gott er. Reynið að lifa í sátt við aðra menn og keppið eftir friði.

16
34:15 í flestum biblíum.
Því að augu Drottins hvíla á hinum réttlátu og hann hlustar eftir bænum þeirra.
17
34:16 í flestum biblíum.
En öllum óguðlegum mun Drottinn eyða og afmá minningu þeirra af jörðinni.
18
34:17 í flestum biblíum.
Þegar réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn og frelsar þá úr nauðum.
19
34:18 í flestum biblíum.
Já, Drottinn er nálægur öllum þeim sem hafa auðmjúkt hjarta. Hann frelsar þá sem í einlægni og auðmýkt iðrast synda sinna.
20
34:19 í flestum biblíum.
Góður maður kemst oft í vanda – fær sinn skammt af mótlæti – en Drottinn á lausn við öllu slíku.
21
34:20 í flestum biblíum.
Jafnvel gegn slysum verndar Drottinn hann.

22
34:21 í flestum biblíum.
Ógæfan eltir og drepur óguðlegan mann og þeir sem hata réttláta bíða síns dóms.
23
34:22 í flestum biblíum.
En Drottinn frelsar líf þjóna sinna. Enginn sem leitar hælis hjá honum verður dæmdur sekur.
Copyright information for IslLO