‏ Psalms 36

1
36:1 í sumum biblíum.
2
36:1 í flestum biblíum.
Rödd syndarinnar talar í huga guðleysingjans og hvetur hann til vondra verka. Enginn guðsótti býr í hjarta hans.
3
36:2 í flestum biblíum.
Syndin dregur hann á tálar, mistök hans verða augljós og menn hata hann.
4
36:3 í flestum biblíum.
Svik og tál eru á vörum hans og hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.
5
36:4 í flestum biblíum.
Á nóttunni liggur hann í rúmi sínu og upphugsar svik, forðast ekki hið illa.

6
36:5 í flestum biblíum.
Drottinn, miskunn þín er mikil eins og himinninn og trúfesti þín takmarkalaus.
7
36:6 í flestum biblíum.
Réttlæti þitt er stöðugt eins og fjöllin. Dómar þínir hvíla á vísdómi, þeir vitna um mikilleik þinn líkt og úthöfin. Þú berð umhyggju fyrir mönnum og skepnum.
8
36:7 í flestum biblíum.
Hversu dýrmæt er miskunn þín ó, Guð! Mennirnir leita skjóls í skugga vængja þinna.
9
36:8 í flestum biblíum.
Þú nærir þá með krásum af borði þínu og lætur þá drekka úr lækjum unaðssemda þinna.

10
36:9 í flestum biblíum.
Þú, Drottinn, ert uppspretta lífsins! í þínu ljósi sjáum við ljós.
11
36:10 í flestum biblíum.
Lát miskunn þína haldast við þá sem þekkja þig og réttlæti þitt við þá sem hlýða þér og elska.

12
36:11 í flestum biblíum.
Lát ekki fót hins hrokafulla troða á mér né hendur óguðlegra hrekja mig burt.
13
36:12 í flestum biblíum.
Líttu á! Illgjörðamennirnir eru fallnir! Þeim hefur verið varpað um koll og þeir megna ekki að rísa upp aftur.
Copyright information for IslLO