‏ Psalms 38

1
38:1 í sumum biblíum.
2
38:1 í flestum biblíum.
Drottinn, ekki refsa mér, þótt þú sért reiður.
3
38:2 í flestum biblíum.
Örvar þínar standa í mér og hönd þín liggur þungt á mér.
4
38:3 í flestum biblíum.
5
38:4 í flestum biblíum.
Vegna reiði þinnar er ég sjúkur maður, heilsa mín er farin vegna synda minna. Syndir mínar líkjast flóði sem færir mig í kaf, eins og byrði sem ég kikna undan.
6
38:5 í flestum biblíum.
7
38:6 í flestum biblíum.
Ólykt leggur af sárum mínum – það er drep í þeim. Ég er ráðþrota vegna synda minna. Ég ráfa um í angist liðlangan daginn.
8
38:7 í flestum biblíum.
Lendar mínar brenna af sviða og líkami minn er helsjúkur.
9
38:8 í flestum biblíum.
Máttur minn er þrotinn og ég er örvæntingu nær.

10
38:9 í flestum biblíum.
Drottinn, ég þrái bót á meini mínu! Þú heyrir kvein mín og andvörp.
11
38:10 í flestum biblíum.
Hjartað hamast í brjósti mér, kraftar mínir búnir og sjónin dvín.
12
38:11 í flestum biblíum.
Ástvinir mínir og góðir grannar forðast sjúkdóm minn og böl og frændur mínir eru á bak og burt.

13
38:12 í flestum biblíum.
Óvinir mínir sæta færis að drepa mig. Liðlangan daginn sitja þeir á svikráðum, brugga mér banaráð.
14
38:13 í flestum biblíum.
15
38:14 í flestum biblíum.
En illráð þeirra verka ekki á mig! Ég virði þá ekki viðlits. Áform þeirra rætast ekki,
16
38:15 í flestum biblíum.
því að ég vona á þig, Drottinn, Guð minn. Kom þú og vernda mig.
17
38:16 í flestum biblíum.
Þaggaðu niður í þeim sem hlæja að óförum mínum.

18
38:17 í flestum biblíum.
Ég er að falli kominn og angist mín er enn hin sama.
19
38:18 í flestum biblíum.
Ég játa syndir mínar og iðrast þess sem ég hef gert.
20
38:19 í flestum biblíum.
En ofsóknum óvina minna linnir ekki og heift þeirra minnkar ekki. Þeir hata mig án ástæðu.
21
38:20 í flestum biblíum.
Þeir launa mér gott með illu, hata mig fyrir góðverk mín.

22
38:21 í flestum biblíum.
Yfirgefðu mig ekki, Drottinn. Vík ekki frá mér!
23
38:22 í flestum biblíum.
Komdu skjótt og hjálpaðu mér, þú frelsari minn!
Copyright information for IslLO