‏ Psalms 4

1
4:1 í sumum biblíum.
2
4:1 í flestum biblíum.
Þú, Guð réttlætis míns, þú sem hefur annast mig í öllum mínum erfiðleikum. Hlusta nú þegar ég kalla á nýjan leik. Miskunna þú mér. Heyr bæn mína.

3
4:2 í flestum biblíum.
Drottinn Guð spyr: „Þið mannanna börn, ætlið þið endalaust að vanhelga nafn mitt með því að tilbiðja þessa heimskulegu hjáguði? Vitið þið ekki að heiður þeirra er bull og hégómi?“

4
4:3 í flestum biblíum.
Takið eftir: Drottinn hefur sýnt mér mikla náð og hann mun hlusta og svara mér þegar ég kalla.
5
4:4 í flestum biblíum.
Sýnið Drottni óttablandna lotningu og syndgið ekki gegn honum. Hugsið um þetta í hvílum ykkar og verið þögul.
6
4:5 í flestum biblíum.
Setjið traust ykkar á Drottin, og færið honum þóknanlegar fórnir.

7
4:6 í flestum biblíum.
Margir spyrja hvar hjálp sé að fá. Drottinn, þú ert sá sem hjálpar. Láttu ljós þitt lýsa okkur.
8
4:7 í flestum biblíum.
Gleðin sem þú hefur veitt mér er mun meiri en þeirra sem gleðjast yfir ríkulegri uppskeru.
9
4:8 í flestum biblíum.
Nú leggst ég til hvíldar í friði og sofna, því þú, Drottinn verndar mig gegn öllu illu.
Copyright information for IslLO