Psalms 42
1 ▼▼42:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼42:1 í flestum biblíum.
Eins og hindin þráir vatnslindir, þrái ég þig, ó Guð. 3 ▼▼42:2 í flestum biblíum.
Mig þyrstir eftir Guði, hinum lifandi Guði. Hvenær fæ ég að koma og standa frammi fyrir honum? 4 ▼▼42:3 í flestum biblíum.
Daga og nætur leita ég hans grátandi, en óvinir mínir spotta mig og segja: „Hvar skyldi Guð þinn vera?!“ 5 ▼▼42:4 í flestum biblíum.
– 6 ▼▼42:5 í flestum biblíum.
Hresstu þig nú, sál mín! Minnstu þess er þú á hátíðum leiddir skrúðgönguna til musterisins, og söngst lofsöng um Drottin? Það var ógleymanlegt! Til hvers þá að vera hnugginn? Hvers vegna að súta og syrgja? Treystu Drottni! Já, svo sannarlega vil ég lofa hann á ný. Aftur vil ég þakka honum hjálp hans. 7 ▼▼42:6 í flestum biblíum.
Ég er dapur og stúrinn, en samt vil ég hugsa um þig hér við fjöllin Misar og Hermon þar sem Jórdan streymir fram. 8 ▼▼42:7 í flestum biblíum.
Bylgjur þínar hafa brotnað á mér og fossar þínir baðað mig í sorg. 9 ▼▼42:8 í flestum biblíum.
En þó streymir náð Drottins til mín dag eftir dag og um nætur lofa ég hann og bið til Guðs sem gaf mér lífið. 10 ▼▼42:9 í flestum biblíum.
Ég bið og segi: „Ó, þú Guð, klettur minn.“„Hvers vegna hefur þú yfirgefið mig? Hvers vegna verð ég að þola árásir óvina minna?“ 11 ▼▼42:10 í flestum biblíum.
Mig svíður undan ögrunum þeirra og aftur og aftur gera þeir gys að mér. „Hvar er þessi Guð þinn?!“segja þeir. 12 ▼▼42:11 í flestum biblíum.
En sál mín, misstu ekki móðinn. Láttu þér ekki gremjast það. Vonaðu á Guð. Já ég veit að hann mun hjálpa mér og þá mun ég lofa hann fyrir allt það sem hann gerir. Hann er björgun mín! Hann er minn Guð!
Copyright information for
IslLO