‏ Psalms 43

1Ó, Guð, láttu mig ná rétti mínum gegn svikulum og vondum mönnum sem ásaka mig. 2Þú einn ert Guð, skjól mitt og vígi. Hvers vegna hefur þú vísað mér frá? Hví verð ég að ganga um harmandi, kúgaður af óvinum? 3Sendu ljós þitt og sannleika til að vísa mér veginn að musteri þínu á Síon, fjallinu þínu helga. 4Þar vil ég ganga að altari Guðs, uppsprettu gleðinnar, og lofa hann með hörpuleik. Ó, Guð, – minn Guð!

5Sál mín hvers vegna ertu döpur og kjarklaus? Treystu Guði! Víst mun ég fá að lofa hann á ný, því hann mun hjálpa mér og aftur mun auglit mitt gleðjast!
Copyright information for IslLO