Psalms 44
1 ▼▼44:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼44:1 í flestum biblíum.
Guð, við höfum heyrt um máttarverk þín á dögum forfeðra okkar. Þeir hafa sagt: 3 ▼▼44:2 í flestum biblíum.
Hann rak heiðnu þjóðirnar úr landinu og gaf okkur það, lét Ísrael setjast hér að. 4 ▼▼44:3 í flestum biblíum.
Ekki sigruðu þeir af eigin krafti, heldur vegna máttar þíns og velþóknunar þinnar á þeim. 5 ▼▼44:4 í flestum biblíum.
Þú ert konungur minn og Guð. Láttu þjóð þína vinna sigur! 6 ▼▼44:5 í flestum biblíum.
Aðeins í þínum krafti og nafni sigrum við óvininn. 7 ▼▼44:6 í flestum biblíum.
Vopnin duga skammt, þau tryggja ekki sigur. 8 ▼▼44:7 í flestum biblíum.
Aðeins með þinni hjálp getum við sigrað. 9 ▼▼44:8 í flestum biblíum.
Guð, aftur og aftur hrósa ég mér af þér. Hvernig get ég þakkað þér sem skyldi! 10 ▼▼44:9 í flestum biblíum.
En þó hefur þú, Drottinn, nú um stund yfirgefið okkur og ekki stutt í orustum. 11 ▼▼44:10 í flestum biblíum.
Já, þú hefur barist gegn okkur og við höfum flúið. Óvinir okkar gerðu árás. Þeir rændu og rupluðu. 12 ▼▼44:11 í flestum biblíum.
Þú hefur farið með okkur eins og sláturfé, tvístrað okkur meðal þjóðanna. 13 ▼▼44:12 í flestum biblíum.
Þú selur þjóð þína fyrir lítið, metur hana einskis virði. 14 ▼▼44:13 í flestum biblíum.
Nágrannarnir hæða okkur og spotta vegna alls sem þú lætur á okkur dynja. 15 ▼▼44:14 í flestum biblíum.
Þín vegna er „Gyðingur!“háðsyrði og hneyksli meðal þjóðanna, öllum til ama. 16 ▼▼44:15 í flestum biblíum.
– 17 ▼▼44:16 í flestum biblíum.
Ég verð fyrir stöðugum skömmum, mér er formælt og ég fyrirlitinn af hefnigjörnum óvinum. 18 ▼▼44:17 í flestum biblíum.
Og þetta hefur gerst, Drottinn, þrátt fyrir tryggð okkar við þig. Sáttmála þinn höfum við ekki rofið. 19 ▼▼44:18 í flestum biblíum.
Ekki höfum við snúið okkur gegn þér, ekki vikið eitt skref af vegi þínum! 20 ▼▼44:19 í flestum biblíum.
Væri svo, gætum við skilið refsingu þína, landauðn og niðdimmu dauðans. 21 ▼▼44:20 í flestum biblíum.
Ef við hefðum hætt að tilbiðja Guð og snúið okkur að hjáguðadýrkun, 22 ▼▼44:21 í flestum biblíum.
hefði honum þá ekki verið kunnugt um það? Hann sem þekkir alla hluti og leyndarmál mannanna. 23 ▼▼44:22 í flestum biblíum.
En það höfum við ekki gert. Við erum í dauðans hættu fyrir það eitt að þjóna þér! Við erum eins og lömb leidd til slátrunar! 24 ▼▼44:23 í flestum biblíum.
Vakna þú! Rís þú á fætur! Hvers vegna sefur þú, Drottinn? Hefur þú hafnað okkur fyrir fullt og allt? 25 ▼▼44:24 í flestum biblíum.
Hvers vegna horfir þú í aðra átt? Af hverju er þér sama um sorg okkar og neyð? 26 ▼▼44:25 í flestum biblíum.
Við erum fallnir og liggjum hér endilangir. 27 ▼▼44:26 í flestum biblíum.
Rís þú upp, Drottinn, komdu og hjálpaðu okkur! Frelsaðu okkur vegna eilífrar elsku þinnar.
Copyright information for
IslLO