Psalms 46
1 ▼▼46:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼46:1 í flestum biblíum.
Guð er mér hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. 3 ▼▼46:2 í flestum biblíum.
Þess vegna óttumst við ekki, þótt heimurinn farist og fjöllin steypist í hafið. 4 ▼▼46:3 í flestum biblíum.
Hafið æði og freyði, fjöllin nötri og skjálfi! 5 ▼▼46:4 í flestum biblíum.
Lækir gleðinnar streyma frá borg Guðs – frá heilögum bústað Guðs hins hæsta. 6 ▼▼46:5 í flestum biblíum.
Hér býr Guð, hún mun ekki haggast. Þegar þörf er á, kemur Guð henni til hjálpar. 7 ▼▼46:6 í flestum biblíum.
Þjóðir risu upp og létu ófriðlega en þegar Guð talaði varð heimurinn að þagna og jörðin nötraði. 8 ▼▼46:7 í flestum biblíum.
Drottinn, hann sem ræður hersveitum himinsins, er hér! Hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er kominn til að hjálpa. 9 ▼▼46:8 í flestum biblíum.
Komið og sjáið máttarverk hans á jörðinni. 10 ▼▼46:9 í flestum biblíum.
Hann stöðvar styrjaldir um víða veröld, brýtur vopnin og kastar á eld. 11 ▼▼46:10 í flestum biblíum.
„Þögn! Standið kyrr! Vitið að ég er Guð! Allar þjóðir heims syni mér lotningu.“ 12 ▼▼46:11 í flestum biblíum.
Drottinn hersveita himinsins er hér, hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er hér til að frelsa!
Copyright information for
IslLO