‏ Psalms 49

1
49:1 í sumum biblíum.
2
49:1 í flestum biblíum.
3
49:2 í flestum biblíum.
Texti vers(s) 3 hefur verið sameinaður þessu versi.
Texti vers(s) 3 hefur verið sameinaður þessu versi.
Hlustið nú háir og lágir, ríkir og fátækir. Allir heimsbúar hlýðið á.
4
49:3 í flestum biblíum.
Ég tala til ykkar vísdómsorð.
5
49:4 í flestum biblíum.
Með undirleik hörpu kveð ég um hyggindi, veiti svör við spurningum lífsins:
6
49:5 í flestum biblíum.
Láttu ekki ógæfuna hræða þig, né óvini sem umkringja þig með illsku!
7
49:6 í flestum biblíum.
Auðæfum sínum treysta þeir og stæra sig af miklu ríkidæmi
8
49:7 í flestum biblíum.
en þó gæti enginn þeirra greitt Guði lausnargjald fyrir bróður sinn, keypt hann lausan.
9
49:8 í flestum biblíum.
10
49:9 í flestum biblíum.
Sál mannsins er dýrmætari en svo að hún verði keypt fyrir fé. Auður alls heimsins hrekkur ekki til að kaupa einum manni líf og forða honum frá gröfinni.

11
49:10 í flestum biblíum.
Þið auðmenn og vitringar og aðrir sem hreykið ykkur hátt, þið munuð farast eins og aðrir menn. Þið hafið enga kröfu til lífsins fremur en fífl og fáráðlingar. Þið verðið að eftirláta öðrum auð ykkar.
12
49:11 í flestum biblíum.
Hús og eignir bera nöfn ykkar rétt eins og þið ætlið að búa þar að eilífu!
13
49:12 í flestum biblíum.
Nei, maðurinn verður að deyja. Hann er eins og skepnurnar, þrátt fyrir frægð sína og frama.
14
49:13 í flestum biblíum.
Slík verða afdrif hinna hrokafullu en samt mun þeirra getið með virðingu þegar þeir eru dauðir.

15
49:14 í flestum biblíum.
En þeir fá ekki umflúið dauðann. Þegar upp er staðið verða hinir vondu að þjóna hinum góðu. Vald auðsins er þeim gagnslaust í dauðanum og ekki taka þeir auðæfi sín með sér.

16
49:15 í flestum biblíum.
En hvað um mig? Guð mun leysa sál mína frá dauða og frelsa mig úr helju.

17
49:16 í flestum biblíum.
Vertu ekki gramur þótt einhver verði ríkur og reisi sér glæsihöll.
18
49:17 í flestum biblíum.
Ekkert af því mun hann taka með sér í gröfina, ekki einu sinni frægð sína!
19
49:18 í flestum biblíum.
Í lifanda lífi telur hann sig heppinn og heimurinn klappar honum lof í lófa,
20
49:19 í flestum biblíum.
en þó deyr hann eins og aðrir og hverfur inn í myrkrið.
21
49:20 í flestum biblíum.
Sá sem elskar eigin lofstír deyr eins og skepnan, þrátt fyrir frægð sína og frama.
Copyright information for IslLO