‏ Psalms 5

1
5:1 í sumum biblíum.
2
5:1 í flestum biblíum.
Drottinn, hlustaðu á orð mín. Heyr þú mína einlægu bæn.
3
5:2 í flestum biblíum.
Hlustaðu á kveinstafi mína, þú Guð, konungur minn, því að ég mun aldrei biðja til neins nema þín.
4
5:3 í flestum biblíum.
Á hverjum morgni horfi ég til himins, já til þín, og legg bænir mínar fram fyrir þig.

5
5:4 í flestum biblíum.
Ég veit að þú fyrirlítur óguðleika og að þeir sem iðka hið illa fá ekki að dveljast hjá þér.
6
5:5 í flestum biblíum.
Hrokafullir syndarar standast augnaráð þitt ekki, því að þú hatar illgjörðir þeirra.
7
5:6 í flestum biblíum.
Þú munt eyða þeim sem tala lygi og þú hefur andstyggð á morðum og svikum.

8
5:7 í flestum biblíum.
En hvað um mig? Af náð þinni fæ ég að ganga inn í musteri þitt, umvafinn vernd þinni og ást. Ég vil tilbiðja þig í djúpri lotningu.

9
5:8 í flestum biblíum.
Drottinn, leiddu mig eins og þú lofaðir mér, annars munu óvinir mínir sigra mig. Segðu mér skýrt hvað ég á að gera, og hvert ég á að fara,
10
5:9 í flestum biblíum.
því að þeir reyna að blekkja mig. Hjörtu þeirra eru full af illsku. Tortíming og dauði býr í ráðum þeirra og þeir nota svik og pretti sér til framdráttar.
11
5:10 í flestum biblíum.
Ó, Guð láttu þá fá makleg málagjöld. Þeir lendi í eigin gildru. Hrintu þeim burt vegna hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.

12
5:11 í flestum biblíum.
En þeir sem treysta þér gleðjast og kætast. Þeir hrópa af gleði því þú verndar þá. Þeir sem elska þig gleðjast yfir þér.
13
5:12 í flestum biblíum.
Því að þú, ó Guð, blessar hinn trúaða, þú verndar hann með skildi elsku þinnar.
Copyright information for IslLO