Psalms 50
1Drottinn er alvaldur Guð. Hann kallar þjóð sína saman úr austri og vestri. 2Dýrð Guðs ljómar frá musteri hans á Síonfjalli. 3Hann birtist í þrumugný, umlukinn eyðandi eldi og stormviðri. 4Hann er kominn til að dæma lýð sinn. Hróp hans heyrist á himni og jörðu: 5„Safnið saman þjóð minni sem með fórnunum á altari mínu hefur gert sáttmála við mig.“ 6Guð mun dæma réttláta dóma. Himinninn vitnar um réttlæti hans. 7Hlusta þú, þjóð mín! Ég er þinn Guð! Taktu eftir úrskurði mínum: 8Fórnir þínar tek ég gildar. Þar hefur þú sýnt trúfesti. 9En ég girnist þó ekki uxa þína og geitur, 10– 11því að öll dýr jarðarinnar tilheyra mér! Hjarðirnar á fjöllunum og fuglar loftsins – allt er það mitt. 12Væri ég hungraður, segði ég þér ekki frá því – allt á jörðu er mitt, ekkert er undan skilið. 13Nei, ég þrái ekki kjötfórnir þínar og blóðfórnir, 14– 15heldur þakklæti og orðheldni. Ákallaðu mig á degi neyðarinnar og þá mun ég frelsa þig. Og þú skalt vegsama mig. Já, þetta skaltu gera. 16En við hina óguðlegu segir Drottinn: „Hættið að þylja upp lögmál mitt og heimta af mér, 17þið sem hafnið aga og lítilsvirðið boðorð mín. 18Þið aðstoðið þjófinn og samneytið hórkörlum. 19Þið bölvið og ljúgið 20og baktalið bróður ykkar. 21Þannig ferst ykkur og svo á ég að þegja?! Er ég þá eins og þið? Nei, ég mun hegna ykkur svo ekki verður um villst. 22En þið sem gleymduð Guði, fáið eitt tækifæri enn, síðan læt ég eyðinguna koma og þá er allt um seinan. 23Sá sem færir þakkargjörð að fórn, heiðrar mig. Og þeir sem breyta eftir orðum mínum fá að sjá hjálpræði mitt.“
Copyright information for
IslLO