‏ Psalms 51

1
51:1 í sumum biblíum.
Þennan sálm orti Davíð
2
51:Title í sumum biblíum.
eftir að Natan spámaður hafði birt honum dóm Guðs vegna hórdóms hans með Batsebu og morðsins á Úría eiginmanni hennar.

3
51:1 í flestum biblíum.
Þú góði og miskunnsami Guð, ó, fyrirgefðu mér! Vertu mér náðugur! Taktu burt synd mína og skömm!
4
51:2 í flestum biblíum.
Þvoðu mig hreinan af syndasekt minni. Hreinsaðu hjarta mitt
5
51:3 í flestum biblíum.
því að ég játa synd mína – daga og nætur minnir hún á sig!
6
51:4 í flestum biblíum.
Gegn þér, já þér einum, hef ég brotið. Drýgt hræðilega synd. Þú varst vitni að öllu þessu og dómur þinn er réttlátur.
7
51:5 í flestum biblíum.
Syndugur var ég þegar móðir mín fæddi mig, sekur þegar ég varð til.
8
51:6 í flestum biblíum.
Þú vilt að menn séu hreinskilnir við sjálfa sig, einlægir og segi satt. Gefðu mér náð til að gera það!

9
51:7 í flestum biblíum.
Þvoðu mig að ég verði hreinn, hreinsaðu mig svo ég verði hvítari en snjór.
10
51:8 í flestum biblíum.
Og þegar þú hefur refsað mér, þá gefðu mér gleði mína á ný.
11
51:9 í flestum biblíum.
Einblíndu ekki á syndir mínar, heldur afmáðu þær allar.
12
51:10 í flestum biblíum.
Skapaðu í mér nýtt og hreint hjarta, ó Guð! Gefðu mér þinn heilaga anda svo að ég hugsi rétt og þrái það sem gott er.
13
51:11 í flestum biblíum.
Varpaðu mér ekki burt frá þér og taktu ekki þinn heilaga anda frá mér.
14
51:12 í flestum biblíum.
Fylltu mig aftur gleði þíns hjálpræðis og löngun til að hlýða þér!
15
51:13 í flestum biblíum.
Þá get ég leitt aðra syndara inn á veg þinn svo að þeir – sekir eins og ég – játi syndir sínar og snúi sér til þín.
16
51:14 í flestum biblíum.
17
51:15 í flestum biblíum.
Frelsaðu mig frá dauðans háska, ó Guð minn. Þú einn getur frelsað mig! Leyf mér að syngja um miskunn þína, Drottinn. Opnaðu varir mínar svo að ég megi vegsama þig!
18
51:16 í flestum biblíum.
Þú hefur ekki þóknun á dýrafórnum, annars myndi ég láta þær í té. Og brennifórnir eru ekki í uppáhaldi hjá þér.
19
51:17 í flestum biblíum.
Þetta vilt þú: Auðmjúkan anda og iðrandi samvisku. Þann sem iðrast af öllu hjarta, munt þú ó Guð, ekki fyrirlíta.

20
51:18 í flestum biblíum.
Drottinn, lát Ísrael ekki gjalda syndar minnar. Hjálpaðu þjóð þinni og vernda Jerúsalem.

21
51:19 í flestum biblíum.
Þegar hjarta mitt er rétt gagnvart þér, þá gleðst þú yfir verkum mínum og því sem ég fórna á altari þínu.
Copyright information for IslLO