‏ Psalms 56

1
56:1 í sumum biblíum.
2
56:1 í flestum biblíum.
Drottinn, miskunna þú mér, því að liðlangan daginn sækja óvinir mínir að.
3
56:2 í flestum biblíum.
Fjandmennirnir ryðjast fram, fjölmennt lið, þeir ætla að drepa mig.

4
56:3 í flestum biblíum.
Þegar ég er hræddur, set ég traust mitt á þig.
5
56:4 í flestum biblíum.
Ég treysti loforðum Guðs og veit því að þessir óvinir munu ekki ná mér, þeir eru aðeins dauðlegir menn!
6
56:5 í flestum biblíum.
Þeir vinna gegn mér með öllum ráðum og hugsa um það eitt að fella mig.
7
56:6 í flestum biblíum.
Þeir áreita mig, sitja um mig. Þeir liggja í leyni eins og stigamenn, hlusta eftir fótataki mínu og leggja ör á streng.
8
56:7 í flestum biblíum.
Þeir halda sig sleppa við refsingu, og komast undan, en Drottinn, láttu þá fá makleg málagjöld, annað er ekki réttlátt.

9
56:8 í flestum biblíum.
Þú þekkir alla hrakninga mína og tár, já, þekkir þau með tölu!

10
56:9 í flestum biblíum.
Þegar ég hrópa til þín um hjálp, breytist bardaginn. Óvinir mínir flýja! Þá veit ég að Guð er með mér! Hann liðsinnir mér!
11
56:10 í flestum biblíum.
Með hjálp Guðs mun ég lofa orð hans, já vissulega mun ég lofa orð hans.
12
56:11 í flestum biblíum.
Ég treysti Guði. Loforð hans eru dásamleg! Ég óttast ekki svikráð mannanna – hvað geta þeir gert mér?!
13
56:12 í flestum biblíum.
Drottinn, ég vil standa við orð mín og þakka þér hjálpina!
14
56:13 í flestum biblíum.
Þú hefur frelsað mig frá dauða og forðað frá hrösun og þess vegna fæ ég að njóta ljóss og lífs með þér.
Copyright information for IslLO