Psalms 58
1 ▼▼58:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼58:1 í flestum biblíum.
Þið konungar og leiðtogar þjóðanna, talið þið sannleika? Er réttlæti í dómum ykkar og úrskurðum? 3 ▼▼58:2 í flestum biblíum.
Nei, svo er ekki. Þið eruð allir svikarar sem seljið „réttlæti“fyrir mútur. 4 ▼▼58:3 í flestum biblíum.
Slíkir menn hafa allt frá fæðingu vikið af réttum vegi. Þeir hafa talað lygi frá því þeir fengu málið. 5 ▼▼58:4 í flestum biblíum.
– 6 ▼▼58:5 í flestum biblíum.
Eiturnöðrur eru þeir, slöngur sem daufheyrast við skipunum særingamannsins. 7 ▼▼58:6 í flestum biblíum.
Drottinn, slíttu úr þeim eiturbroddinn! Dragðu vígtennurnar úr þessum vörgum, ó Guð. 8 ▼▼58:7 í flestum biblíum.
Láttu þá hverfa eins og jörðin hafi gleypt þá. Sláðu vopnin úr höndum þeirra. 9 ▼▼58:8 í flestum biblíum.
Láttu þá þorna upp eins og snigla og ekki sjá sólina frekar en þeir sem andvana eru fæddir. 10 ▼▼58:9 í flestum biblíum.
Guð mun svipta þeim burt, eyða þeim skjótar en pottur hitnar yfir eldi. 11 ▼▼58:10 í flestum biblíum.
Þá munu hinir guðhræddu fagna, þegar réttlætið sigrar og þeir fá að ganga um blóðidrifin stræti fallinna óvina. 12 ▼▼58:11 í flestum biblíum.
Þá munu menn sjá að réttlætið sigrar og að Guð dæmir jörðina með réttvísi.
Copyright information for
IslLO