‏ Psalms 6

1 ▼
▼6:1 í sumum biblíum.
–
2 ▼
▼6:1 í flestum biblíum.
Æ, Drottinn! Ekki refsa mér í reiði þinni!
3 ▼
▼6:2 í flestum biblíum.
Miskunnaðu mér því að ég örmagnast. Lækna mig, því að líkami minn er sjúkur.
4 ▼
▼6:3 í flestum biblíum.
Ég er hræddur, veit ekki mitt rjúkandi ráð. Ó, Drottinn, reistu mig á fætur, og það fljótt!

5 ▼
▼6:4 í flestum biblíum.
Komdu Drottinn og læknaðu mig. Bjargaðu mér í kærleika þínum.
6 ▼
▼6:5 í flestum biblíum.
Því að ef ég dey, þá get ég ekki lengur lofað þig meðal vina minna.
7 ▼
▼6:6 í flestum biblíum.
Ég er aðframkominn af kvöl. Hverja nótt væti ég koddann með tárum.
8 ▼
▼6:7 í flestum biblíum.
Augu mín daprast af hryggð vegna illráða óvina minna.

9 ▼
▼6:8 í flestum biblíum.
Farið! Látið mig í friði, þið illmenni, því að Drottinn hefur séð tár mín
10 ▼
▼6:9 í flestum biblíum.
og heyrt grátbeiðni mína. Hann mun svara öllum mínum bænum.
11 ▼
▼6:10 í flestum biblíum.
Óvinir mínir munu verða til skammar og skelfingin mun steypast yfir þá. Guð mun reka þá sneypta burtu.
Copyright information for IslLO