‏ Psalms 62

1
62:1 í sumum biblíum.
2
62:1 í flestum biblíum.
Ég bíð rólegur og þögull eftir hjálp Drottins.
3
62:2 í flestum biblíum.
Hann einn er bjarg mitt og lausnari, vörn mín og vígi. Ég hef ekkert að óttast.

4
62:3 í flestum biblíum.
5
62:4 í flestum biblíum.
En hvað um þessa menn sem ásaka mig þegar veldi mitt stendur höllum fæti, vilja mig feigan og ljúga og pretta til að steypa mér af stóli. Þeir tala fagurgala, satt er það, en hata mig í hjörtum sínum!
6
62:5 í flestum biblíum.
En ég stend þögull frammi fyrir fyrir Drottni og vænti hjálpar hans. Hann einn getur hjálpað.
7
62:6 í flestum biblíum.
Já, hann einn er bjarg mitt, og lausnari, vörn mín og vígi. Ég hef ekkert að óttast.

8
62:7 í flestum biblíum.
Öryggi mitt og farsæld er í hendi Drottins. Hann einn er skjól mitt og klettur – þangað kemst óvinurinn ekki!

9
62:8 í flestum biblíum.
Þú þjóð mín, treystu Drottni. Segið honum óskir ykkar, hann getur uppfyllt þær!
10
62:9 í flestum biblíum.
Mennirnir miklast og hrokast í hégóma sínum. Einn þykist öðrum meiri, en hann metur alla jafnt.

11
62:10 í flestum biblíum.
12
62:11 í flestum biblíum.
Safnið ekki auði með svikum og ránum og treystið ekki illa fengnu fé. Treystið Drottni! Minnist þess aftur og aftur að Drottins er styrkurinn.
13
62:12 í flestum biblíum.
Já, hjá þér Drottinn, er miskunn og þú launar sérhverjum eftir verkum hans.
Copyright information for IslLO