Psalms 66
1Allur heimurinn gleðjist með Guði! 2Lofið nafn hans, það er undursamlegt! Segið öllum frá máttarverkum hans! 3Guð, hversu undursamleg eru verk þín! Máttur þinn er stórkostlegur! Ekki er að furða þótt óvinir þínir smjaðri fyrir þér. 4Lofaður sért þú um víða veröld! 5Komið og sjáið máttarverk Guðs! Mikil eru þau undur sem fólk hans fær að sjá og reyna. 6Hann opnaði þeim veg í gegnum hafið! Þar gengu þeir yfir þurrum fótum. Hvílík gleði og fögnuður ríkti þann dag! 7Drottinn mun ríkja að eilífu vegna máttar síns. Hann virðir vandlega fyrir sér mennina. Engir uppreisnarmenn þora að láta á sér bæra. 8Sérhver maður lofi Drottin og vegsami nafn hans. 9Hann gaf okkur lífið og hann verndar frá hrösun. 10Þú, ó Guð, hreinsaðir okkur í eldi eins og silfur er hreinsað. 11Þú hefur fjötrað okkur og lokað inni og lagt á okkur byrðar. 12Þú lést hersveitir troða okkur fótum og við urðum að fara gegnum eld og vatn, en að lokum leiddir þú okkur út og inn í yndislegt land. 13Nú kem ég í helgidóm þinn, fórna og efni þannig heit mitt. 14Manstu, þegar ég var í nauðum staddur, þá gaf ég þér heit? 15Nú ber ég fram fórn mína: Hrúta, naut og kiðling. Megi reykurinn af fórnum þessum stíga upp til þín. 16Komið og hlustið, þið sem óttist Drottin, og ég skal segja ykkur hvað hann hefur gert fyrir mig!: 17Ég hrópaði til hans um hjálp, – og víst bjó lofgjörðin undir! 18En fyrst játaði ég synd mína, annars hefði ég ekki fengið svar. 19En hann heyrði bæn mína og hlustaði, gaf gaum að því sem ég sagði. 20Lof sé Guði! Hann vísaði ekki bæn minni á bug né tók miskunn sína frá mér.
Copyright information for
IslLO