Psalms 68
1 ▼▼68:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼68:1 í flestum biblíum.
Þegar Guð rís á fætur þá tvístrast óvinir hans! Þeir sem hata hann flýja sem mest þeir mega. 3 ▼▼68:2 í flestum biblíum.
Blástu þeim burt eins og reyk í vindi! Bræddu þá eins og vax í eldi! Þannig munu óguðlegir tortímast fyrir Guði. 4 ▼▼68:3 í flestum biblíum.
En hinir trúuðu skulu fagna. Þeir kætist og gleðjist 5 ▼▼68:4 í flestum biblíum.
og lofsyngi Guði! Hefjið lofsöng til hans sem ekur um á skýjunum. Nafn hans er Drottinn! Gleðjist og fagnið í nærveru hans. 6 ▼▼68:5 í flestum biblíum.
Hann er faðir föðurlausra og verndari ekkna, hann er heilagur. 7 ▼▼68:6 í flestum biblíum.
Hann lætur hinn einmana komast heim aftur og leiðir fanga út í frelsið á ný. Þar verður sungið og fagnað! En uppreisnarmenn skulu búa við sult og seyru. 8 ▼▼68:7 í flestum biblíum.
Guð, þegar þú leiddir þjóð þína gegnum öræfin, 9 ▼▼68:8 í flestum biblíum.
þá skalf jörðin og himnarnir nötruðu. Sínaífjall hneigði sig fyrir þér af virðingu og ótta – þér Guði Ísraels. 10 ▼▼68:9 í flestum biblíum.
– 11 ▼▼68:10 í flestum biblíum.
Þú, Guð, sendir regnskúrir yfir land þitt, hresstir það og endurnærðir. Þar settist þjóð þín að. Þú gafst hinum hrjáðu heimili og skjól. 12 ▼▼68:11 í flestum biblíum.
– 13 ▼▼68:12 í flestum biblíum.
Drottinn lætur orð sín rætast og þegar hann talar flýja óvinirnir. Konurnar sem heima eru flytja gleðifrétt: „Óvinaherinn er flúinn, þeir sem vildu eyða öllu og umturna!“Og konur í Ísrael skipta herfanginu. 14 ▼▼68:13 í flestum biblíum.
Þær hylja sig með gulli og silfri, rétt eins og dúfan vængjum sínum! 15 ▼▼68:14 í flestum biblíum.
Þegar Guð stökkti óvinunum á flótta þá snjóaði á Salmonsfjalli. 16 ▼▼68:15 í flestum biblíum.
– 17 ▼▼68:16 í flestum biblíum.
Þið voldugu Basanfjöll, þið illkleifu tindar! Hvers vegna horfið þið með öfund til Síonar – fjallsins sem Drottinn hefur kosið sér til bústaðar? 18 ▼▼68:17 í flestum biblíum.
Með þúsundum vagna lagði Drottinn upp frá Sínaí og kom til síns heilaga musteris á Síon. 19 ▼▼68:18 í flestum biblíum.
Hann kleif fjöllin, tók með sér fjölda bandingja og veitti viðtöku gjöfum frá mönnum, jafnvel uppreisnarmönnum. Og nú býr hann hér! 20 ▼▼68:19 í flestum biblíum.
Lofaður sé Drottinn! Hann leiðir okkur dag eftir dag og hjálpar í öllum vanda. 21 ▼▼68:20 í flestum biblíum.
Guð er hjálpræðisguð. Hann er alvaldur og bjargar frá dauða. 22 ▼▼68:21 í flestum biblíum.
En óvinum sínum eyðir hann, þeim sem þrjóskast og halda áfram á glæpabraut. 23 ▼▼68:22 í flestum biblíum.
Hann segir: „Komið!“við óvini þjóðar sinnar, þá sem fela sig til fjalla eða í hafdjúpunum. 24 ▼▼68:23 í flestum biblíum.
Þjóð hans vill troða þá undir, ganga í blóði þeirra og gefa hundum hræ þeirra. 25 ▼▼68:24 í flestum biblíum.
Guð, konungur minn, gengur inn til musteris síns. 26 ▼▼68:25 í flestum biblíum.
Fremst fara söngvarar, þá hljóðfæraleikarar og stúlkur sem slá taktinn. 27 ▼▼68:26 í flestum biblíum.
Allur Ísrael gleðjist með Guði, uppsprettu Ísraels á þessum hátíðardegi. 28 ▼▼68:27 í flestum biblíum.
Fremst fer Benjamínsætt, hún er minnst. Þá koma prinsar og öldungar Júda og síðan höfðingjar Sebúlons og Naftalí. 29 ▼▼68:28 í flestum biblíum.
Sýn þú, Guð, mátt þinn og styrk, því að mikla hluti hefur þú gert. 30 ▼▼68:29 í flestum biblíum.
Konungar jarðarinnar gefa gjafir til musteris þíns í Jerúsalem. 31 ▼▼68:30 í flestum biblíum.
Ávíta þú óvini okkar, Drottinn. Færðu þá hingað, sneypta og berandi skattinn! Tvístraðu þeim sem efna til ófriðar. 32 ▼▼68:31 í flestum biblíum.
Egyptar sendi gull og Bláland fórni höndum í lotningu til Guðs. 33 ▼▼68:32 í flestum biblíum.
Syngið frammi fyrir Drottni, þið konungsríki jarðarinnar, syngið honum lofgjörðarsöng, 34 ▼▼68:33 í flestum biblíum.
honum, Guði eilífðar, sem ekur um himininn og talar með þrumuraust svo að undir tekur. 35 ▼▼68:34 í flestum biblíum.
Drottinn hefur máttinn! Dýrð hans ljómar yfir Ísrael og hans voldugu verk birtast á himninum. 36 ▼▼68:35 í flestum biblíum.
Við krjúpum fyrir honum í lotningu og ótta í musteri hans. Ísraels Guð veitir þjóð sinni mátt og megin. Lofaður sé Guð!
Copyright information for
IslLO