‏ Psalms 69

1
69:1 í sumum biblíum.
2
69:1 í flestum biblíum.
Frelsaðu mig, ó Guð, því að vatnið hækkar sífellt
3
69:2 í flestum biblíum.
og ég sekk æ dýpra í þessa botnlausu leðju.
4
69:3 í flestum biblíum.
Ég er útgrátinn og örmagna, hálsinn þurr og sár og augun þrútin. Góði Guð, bjargaðu mér!
5
69:4 í flestum biblíum.
Þeir eru margir sem hata mig að ástæðulausu, fjöldi manna sem brugga mér banaráð. Þó er ég saklaus. Þeir heimta að ég bæti það sem ég hef ekki brotið!

6
69:5 í flestum biblíum.
Ó, Guð, þú þekkir heimsku mína og syndir.
7
69:6 í flestum biblíum.
Drottinn Guð, þú sem ræður hersveitum himnanna, láttu mig ekki verða til hneykslunar þeim sem treysta þér. Þú Guð Ísraels, forðaðu mér frá því að valda þeim vonbrigðum,
8
69:7 í flestum biblíum.
þó svo að þín vegna sé ég hæddur og smáður.
9
69:8 í flestum biblíum.
Jafnvel bræður mínir sniðganga mig!
10
69:9 í flestum biblíum.
Guð, þú ert í huga mér öllum stundum og um musteri þitt hugsa ég. Og vegna þess að ég held uppi málstað þínum, hata þeir mig, rétt eins og þig.
11
69:10 í flestum biblíum.
Ég hef fastað og iðrast frammi fyrir þér, en þeir hæddu mig engu að síður.

12
69:11 í flestum biblíum.
Ég klæddist hærusekk – tákni auðmýktar og iðrunar – og þá ortu þeir um mig níðvísu!
13
69:12 í flestum biblíum.
Ég er nýjasta fréttin í bænum og jafnvel rónarnir spotta mig!
14
69:13 í flestum biblíum.
En ég held áfram að biðja til þín, Drottinn, og gefst ekki upp, því að þú hlustar! Svaraðu mér með blessun þinni og miskunnaðu mér.

15
69:14 í flestum biblíum.
Dragðu mig upp úr leðjunni, Drottinn, ég finn að ég er að sökkva! Forðaðu mér frá óvinum mínum, úr þessum hræðilega pytti!
16
69:15 í flestum biblíum.
Láttu ekki flóðið taka mig, hringiðuna svelgja mig!
17
69:16 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, svaraðu bænum mínum, vegna gæsku þinnar og náðar við mig.
18
69:17 í flestum biblíum.
Snúðu ekki við mér bakinu, því að ég er í nauðum staddur! Flýttu þér! Komdu og frelsaðu mig!
19
69:18 í flestum biblíum.
Drottinn, komdu og bjargaðu mér! Leystu mig undan ofríki óvina minna.
20
69:19 í flestum biblíum.
Þú sérð þá og þekkir háðsglósur þeirra, hvernig þeir níða mig niður.

21
69:20 í flestum biblíum.
Háðsyrði þeirra hafa sært mig djúpu sári og andi minn örmagnast. Ó, ef einhver hefði sýnt mér samúð og einhver viljað hugga mig!
22
69:21 í flestum biblíum.
Þeir færðu mér eitraðan mat – malurt – og edik við þorstanum.
23
69:22 í flestum biblíum.
Verði gleði þeirra að sorg og friður þeirra að skelfingu.
24
69:23 í flestum biblíum.
Myrkur komi yfir þá, blinda og ringulreið.
25
69:24 í flestum biblíum.
Reiði þín upptendrist gegn þeim og eldur þinn tortími þeim.
26
69:25 í flestum biblíum.
Leggðu hús þeirra í rúst svo að þar búi enginn framar.
27
69:26 í flestum biblíum.
Því að þeir ofsækja þann sem þú hefur slegið og hlæja að kvöl þess sem þú hefur gegnumstungið.
28
69:27 í flestum biblíum.
Skráðu hjá þér allar syndir þeirra, já láttu enga gleymast.
29
69:28 í flestum biblíum.
Strikaðu þá út af listanum yfir þá sem fá að lifa, leyfðu þeim ekki að njóta lífsins með réttlátum.

30
69:29 í flestum biblíum.
Ó, Guð, frelsaðu mig úr þessari neyð! Ég veit að þú munt bjarga mér!
31
69:30 í flestum biblíum.
Ég lofa Guð í ljóði, mikla hann með lofsöng.
32
69:31 í flestum biblíum.
Það mun gleðja hann meira en margs konar fórnir.
33
69:32 í flestum biblíum.
Hinir auðmjúku munu sjá að Drottinn hjálpar mér og þeir munu gleðjast. Já, gleðjist, þið sem leitið Guðs!
34
69:33 í flestum biblíum.
Því að Drottinn heyrir hróp hinna snauðu, og snýr ekki við þeim bakinu.

35
69:34 í flestum biblíum.
Himinn og jörð, lofið Drottin, og hafið og allt sem í því er!
36
69:35 í flestum biblíum.
Því að Guð mun frelsa Jerúsalem og endurreisa borgirnar í Júda og þjóð hans mun búa við öryggi.
37
69:36 í flestum biblíum.
Börnin munu erfa landið og þeir sem elska Drottin njóta þar friðar og velgengni.
Copyright information for IslLO