‏ Psalms 71

1Drottinn, þú ert skjól mitt! Ekki yfirgefa mig! 2Frelsaðu mig frá óvinum mínum, því að þú er réttlátur. Bjargaðu mér! Snúðu eyra þínu að mér og hlustaðu á mína einlægu bæn. 3Vertu mér vígi og skjól gegn öllum árásum. 4Já, bjargaðu mér ó Guð, frá svikum þessara illmenna. 5Drottinn, þú ert mín síðasta von. Allt frá barnsaldri treysti ég á þig. 6Frá fæðingu hefur þú vakað yfir mér og verndað mig – skyldi ég ekki vegsama þig?! 7Velgengni mína, sem margir undrast, á ég vernd þinni að þakka. 8Ég vil lofa þig liðlangan daginn, ó Guð, því að alls góðs hef ég notið úr hendi þinni. 9Nú þegar aldurinn færist yfir, þá vísa mér ekki frá. Hafnaðu mér ekki þegar þrekið minnkar. 10 11Óvinir mínir hvísla: „Guð hefur yfirgefið hann! Nú er hann auðveld bráð. Hann hefur engan sér til hjálpar!“ 12Guð minn, farðu ekki frá mér! Komdu fljótt og hjálpaðu mér! 13Útrýmdu þeim. Láttu þá verða til skammar sem óska mér óhamingju. 14En ég mun áfram treysta þér og ekki draga úr lofgjörð minni! 15Oftsinnis frelsaðir þú mig úr bráðri hættu. Ég vitna og rifja upp gæsku þína og daglega umhyggju. 16Drottinn, styrkur þinn heldur mér uppi. Það skulu allir vita að þú einn ert góður og réttlátur. 17Guð minn, allt frá æsku hjálpaðir þú mér – um dásemdarverk þín hef ég ekki þagað. 18Nú er ég orðinn gamall og hárin grá, en Drottinn yfirgefðu mig ekki! Láttu mig lifa enn um stund, svo að unga kynslóðin fái að heyra um máttarverk þín. 19Kraftur þinn og kærleikur, Drottinn, nær til himna. Ó, hve það er dásamlegt! Hvar er slíkan Guð að finna sem þig?! 20Þú hefur sent okkur margvíslegt mótlæti – en ég veit að þú munt frelsa á ný og leyfa okkur að lifa! 21Þú munt auka við heiður minn og hugga mig að nýju.

22Ég leik á hörpu mína og lofa þig, því að öll þín orð og fyrirheit hafa staðist, þú hinn heilagi í Ísrael. 23Ég vil lofa þig hárri röddu, því að þú hefur frelsað mig! 24Liðlangan daginn vitna ég um ást þína og réttlæti, því að óvinir mínir sem óskuðu mér ógæfu, voru auðmýktir og roðnuðu af skömm.
Copyright information for IslLO