Psalms 73
1Guð er góður við Ísrael! Hann er góður þeim sem hreinlyndir eru. 2En hvað um mig? Ég var kominn á ystu nöf. Það munaði engu að mér skrikaði fótur og ég félli! 3Ég hafði fyllst gremju út af velgengni hinna hrokafullu. 4Þeim virtist ganga allt í haginn. Þeir eru hraustir og sterkir. 5Þeir virðast lausir við alla erfiðleika og áföll sem henda aðra. 6Hrokinn er eins og glitrandi festi um háls þeirra og þeir eru sveipaðir ofríki eins og skikkju. 7Þeir belgjast út af offitu og augu þeirra tútna af ágirnd. 8Þeir hæðast að Guði og hafa í hótunum við fólk hans. Hroki er í hverju orði. 9Þeir stæra sig gegn himninum og blaðrið í þeim heyrist um allar jarðir. 10Þjóð Guðs er orðlaus og gleypir í sig boðskap þeirra. 11– 12„Guð virðist láta þá í friði,“segir fólk, „já, þessir guðleysingjar lifa áhyggjulausu lífi og verða ríkari með hverjum degi.“ 13Hef ég eytt tíma mínum til einskis? Er til nokkurs að kappkosta að lifa heiðvirðu lífi? 14Allt sem ég hef upp úr því er erfiði og strit – alla daga, sí og æ! 15Ef ég talaði með þessum hætti, væri ég að bregðast lýð þínum. 16En þetta er samt svo torskilið – velgengni þeirra sem hata Drottin. 17En dag einn fór ég í helgidóm Drottins til að íhuga, og þá hugleiddi ég framtíð þessara vondu manna. 18Sá vegur sem þeir ganga mun enda í skelfingu. Skyndilega mun þeim skrika fótur og þeir hrasa og steypast fram af brúninni, niður í hyldýpið. 19Það verður snöggur endir á allri „gæfunni“, skyndileg tortíming. 20Líf þeirra líkist draumi. Þeir munu vakna til veruleikans, eins og þegar menn vakna af draumsvefni og sjá að allt var ímyndun ein! 21Þegar ég skyldi þetta, fylltist ég hryggð og leið illa. 22Ég sá hve heimskur og fávís ég var. Ég hlýt að vera eins og skynlaus skepna í þínum augum, Guð! 23En samt elskar þú mig! Þú heldur í hægri hönd mína og varðveitir mig. 24Og áfram munt þú leiða mig með vísdómi þínum og speki. 25Hvern á ég að á himnum nema þig? Og þú ert sá sem ég þrái mest á jörðu! 26Heilsu minni hrakar og hjarta mitt þreytist, en Guð lifir! Hann er styrkur minn, ég fæ að tilheyra honum að eilífu. 27Drottinn, þeir sem hafna þér munu farast, því að þú eyðir þeim sem þjóna öðrum guðum. 28En hvað um mig? Ég vil komast eins nálægt Guði og ég get! Ég hef kosið að trúa á Drottin. Hann er skjól mitt. Ég vil vitna um það í allra áheyrn að margsinnis hefur hann bjargað mér á undursamlega hátt.
Copyright information for
IslLO