Psalms 75
1 ▼▼75:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼75:1 í flestum biblíum.
Þökk sé þér Drottinn! Máttarverk þín staðfesta umhyggju þína. 3 ▼▼75:2 í flestum biblíum.
„Já,“svarar Drottinn, „og þegar stundin er komin mun ég refsa öllum illgjörðamönnum! 4 ▼▼75:3 í flestum biblíum.
Þótt jörðin nötri og íbúar hennar skjálfi af ótta, eru undirstöður hennar traustar, enda verk handa minna!“ 5 ▼▼75:4 í flestum biblíum.
Ég sagði hinum hrokafullu að láta af drambi sínu og illmennunum að hætta sínum ögrandi augnagotum, 6 ▼▼75:5 í flestum biblíum.
að láta af þrjósku og hroka. 7 ▼▼75:6 í flestum biblíum.
Velgengni og völd getur enginn þakkað sér sjálfum, 8 ▼▼75:7 í flestum biblíum.
allt eru það gjafir frá Guði. Hann upphefur einn, en niðurlægir annan. 9 ▼▼75:8 í flestum biblíum.
Drottinn heldur á bikar fullum af freyðandi víni – það er dómurinn gegn illmennum heimsins. Þau skulu drekka hann í botn! 10 ▼▼75:9 í flestum biblíum.
En ég mun vegsama Guð um aldur og ævi. 11 ▼▼75:10 í flestum biblíum.
Styrkur hinna óguðlegu verður að engu, en réttlátir skulu ríkja með reisn.
Copyright information for
IslLO