Psalms 76
1 ▼▼76:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼76:1 í flestum biblíum.
Orðstír Drottins er mikill í Júda og Ísrael. 3 ▼▼76:2 í flestum biblíum.
Bústaður hans er í Jerúsalem. Hann situr á Síonfjalli. 4 ▼▼76:3 í flestum biblíum.
Þar sundurbraut hann vopn óvina okkar. 5 ▼▼76:4 í flestum biblíum.
Öll háreist fjöll blikna í ljóma dýrðar hans! 6 ▼▼76:5 í flestum biblíum.
Úrvalslið óvinanna er gjörsigrað! Þeir liggja flatir, sofnaðir svefninum langa. Enginn þeirra getur framar lyft hendi. 7 ▼▼76:6 í flestum biblíum.
Þegar þú, Guð Jakobs, hastaðir á þá, féllu bæði hestar og riddarar. 8 ▼▼76:7 í flestum biblíum.
Ekki er að undra þótt menn óttist þig! Hver fær staðist reiði Guðs?! 9 ▼▼76:8 í flestum biblíum.
Þegar þú birtir þeim dóminn frá himnum, þá nötraði jörðin og þagnaði fyrir þér. 10 ▼▼76:9 í flestum biblíum.
Þú stígur fram til að refsa illgjörðamönnunum, en verndar hina auðmjúku. 11 ▼▼76:10 í flestum biblíum.
Þegar við sjáum heimsku og reiði mannanna, þá skiljum við enn betur hve dýrð þín er mikil. 12 ▼▼76:11 í flestum biblíum.
Efnið heitin sem þið gáfuð Drottni, Guði ykkar. Allir sem umhverfis hann eru færa honum gjafir. Þeir nálgast hann með óttablandinni virðingu. 13 ▼▼76:12 í flestum biblíum.
Hann er sá sem lægir ofstopa höfðingjanna og kemur konungum jarðarinnar á kné!
Copyright information for
IslLO