Psalms 81
1 ▼▼81:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼81:1 í flestum biblíum.
Guð er okkar styrkur! Syngið lofsöng og fagnið fyrir Guði Ísraels! 3 ▼▼81:2 í flestum biblíum.
Syngið lofsöng og berjið bumbur, sláið strengi hörpunnar og látið gígjurnar hljóma! 4 ▼▼81:3 í flestum biblíum.
Lúðurinn hvelli! Komið til fagnaðar þegar tunglið er fullt og fjölmennið á hátíðir Drottins. 5 ▼▼81:4 í flestum biblíum.
Þetta er regla í Ísrael; boðorð frá Guði Jakobs. 6 ▼▼81:5 í flestum biblíum.
Við höldum hátíð og minnumst sigurs Drottins á Egyptum þegar við vorum þrælar þar í landi. Ég heyrði ókunna rödd sem sagði: 7 ▼▼81:6 í flestum biblíum.
„Ég vil varpa af þér byrðinni, losa af þér ánauðarfjötrana.“ 8 ▼▼81:7 í flestum biblíum.
Og hann hélt áfram: „Þú hrópaðir í neyðinni og ég frelsaði þig. Ég svaraði þér úr þrumuskýi. Ég reyndi trú þína hjá Meríba, þar sem þorstinn var sár. 9 ▼▼81:8 í flestum biblíum.
Hlustaðu nú á mig, þjóð mín, þegar ég áminni þig. Ísrael, ó, að þú vildir hlýða mér. 10 ▼▼81:9 í flestum biblíum.
Engum öðrum guðum mátt þú þjóna og ekki tilbiðja neina útlenda guði. 11 ▼▼81:10 í flestum biblíum.
Því að það var ég, Drottinn, Drottinn Guð þinn sem leiddi þig út úr Egyptalandi. Prófa þú mig einu sinni enn. Opnaðu munninn og sjáðu hvort ég muni ekki fylla hann. Þú munt vissulega fá hjá mér hverja þá blessun sem þú þarft! 12 ▼▼81:11 í flestum biblíum.
Nei, annars – þjóð mín vill ekki hlusta á mig. Ísrael kærir sig ekki um mig. 13 ▼▼81:12 í flestum biblíum.
Þess vegna leyfi ég þeim að ráfa í blindni á vegum þrjósku sinnar og lifa eftir sínum eigin girndum. 14 ▼▼81:13 í flestum biblíum.
Aðeins ef þjóð mín vildi hlusta á mig! Ó, að Ísrael kysi nú að fylgja mér, ganga á mínum vegum! 15 ▼▼81:14 í flestum biblíum.
Þá mundi ég skjótlega brjóta óvini þeirra á bak aftur – reiða hnefann gegn kúgurum þeirra. 16 ▼▼81:15 í flestum biblíum.
Þá mundu hatursmenn Drottins skríða fyrir honum og ógæfa þeirra vara við. 17 ▼▼81:16 í flestum biblíum.
En ykkur mundi hann ala vel! Já, gefa ykkur hunang úr klettaskoru!“
Copyright information for
IslLO