‏ Psalms 82

1Guð stígur fram á himnum. Hann segir: „Réttur er settur!“Síðan birtir hann úrskurð sinn gegn dómurum á jörðu.

2Hve lengi ætlið þið, dómarar, að sniðganga réttlætið? Hve lengi ætlið þið að draga taum hinna ranglátu? 3Kveðið upp réttláta dóma í málum hinna fátæku og föðurlausu, bágstöddu og þjáðu, 4Losið fátæklingana úr klóm hinna guðlausu! 5Þið eruð sljóir og fáfróðir og blindir. Þess vegna riðar þjóðfélagið til falls. 6Ég hef kallað ykkur „guði“og „syni hins hæsta“, 7en í raun og veru eruð þið aðeins dauðlegir menn. Þið munuð falla rétt eins og aðrir af höfðingjunum.

8Rís þú upp, ó Guð, og dæmdu jörðina. Þú hefur hana á valdi þínu og þjóðirnar eru í þinni hendi.
Copyright information for IslLO