‏ Psalms 84

1
84:1 í sumum biblíum.
2
84:1 í flestum biblíum.
Ó, hve musteri þitt er yndislegt, þú Drottinn hersveitanna.
3
84:2 í flestum biblíum.
Mig langar svo mjög, já ég þrái, að nálgast þig, hinn lifandi Guð.
4
84:3 í flestum biblíum.
Jafnvel spörvum og svölum leyfist að búa sér hreiður innan um ölturu þín og eiga þar unga sína. Þú Drottinn hinna himnesku hersveita, konungur minn og Guð minn!
5
84:4 í flestum biblíum.
Sælir eru þeir sem fá að búa í musteri þínu og syngja þér lof.

6
84:5 í flestum biblíum.
Sælir eru þeir sem fá styrk frá þér og þrá það eitt að ganga veg þinn.
7
84:6 í flestum biblíum.
Þegar þeir ganga gegnum táradalinn, þá breytir þú honum í vatnsríka vin og haustregrúð færir þeim blessun.
8
84:7 í flestum biblíum.
Þeir styrkjast á göngunni og fá að lokum að ganga fram fyrir Drottin í musteri hans á Síon.

9
84:8 í flestum biblíum.
Drottinn, Guð hersveitanna, heyrðu bæn mína! Hlusta þú Guð Ísraels.
10
84:9 í flestum biblíum.
Guð, þú ert vörn okkar, miskunna honum sem þú smurðir til konungs.

11
84:10 í flestum biblíum.
Einn dagur í musteri þínu er betri en þúsund aðrir sem eytt er á öðrum stað! Frekar vildi ég vera dyravörður í musteri Guðs míns, en búa í höllum óguðlegra.
12
84:11 í flestum biblíum.
Því að Drottinn er okkur ljós og skjöldur. Vegsemd og náð veitir hann. Hann neitar þeim ekki um nein gæði sem hlýða honum.

13
84:12 í flestum biblíum.
Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður sem treystir þér.
Copyright information for IslLO