Psalms 85
1 ▼▼85:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼85:1 í flestum biblíum.
Drottinn, þú hefur baðað land þetta blessun! Þú hefur snúið hlutunum Ísrael í hag 3 ▼▼85:2 í flestum biblíum.
og fyrirgefið syndir þjóðar þinnar, já, hulið þær allar! 4 ▼▼85:3 í flestum biblíum.
Reiði þína hefur þú líka dregið í hlé. 5 ▼▼85:4 í flestum biblíum.
Dragðu okkur nær þér svo að við getum elskað þig heitar, að þú þurfir ekki að reiðast okkur á ný. 6 ▼▼85:5 í flestum biblíum.
(Eða mun reiði þín vara að eilífu, frá kynslóð til kynslóðar?) 7 ▼▼85:6 í flestum biblíum.
Lífgaðu okkur við, þjóð þína, svo að við getum aftur lofað þig. 8 ▼▼85:7 í flestum biblíum.
Leyfðu okkur að njóta elsku þinnar og gæsku, ó Guð, og veittu okkur hjálp þína. 9 ▼▼85:8 í flestum biblíum.
Þegar Drottinn talar til þjóðar sinnar, hlusta ég vel, þegar hann ávarpar sinn útvalda lýð. Hann flytur okkur frið og velgengni þegar við snúum hjörtum okkar til hans. 10 ▼▼85:9 í flestum biblíum.
Vissulega njóta þeir hjálpar hans þeir sem hlýða honum og heiðra hann. Velgengni og blessun hans mun breiðast yfir allt landið. 11 ▼▼85:10 í flestum biblíum.
Miskunn og sannleikur munu mætast, réttlæti og friður kyssast! 12 ▼▼85:11 í flestum biblíum.
Trúfestin eflist á jörðu og réttlætið brosir frá himni! 13 ▼▼85:12 í flestum biblíum.
Drottinn blessar landið og það ber margfalda uppskeru. 14 ▼▼85:13 í flestum biblíum.
Réttlæti og friður fylgir Drottni.
Copyright information for
IslLO