Psalms 86
1Drottinn, líttu til mín! Hlustaðu á bæn mína! Svaraðu mér því að ég er í nauðum staddur. 2Bjargaðu mér frá dauða, því að ég tilheyri þér. Frelsaðu mig, því að ég treysti þér og hlýði. 3Miskunna mér, Drottinn. Ég mæni til þín og vona á þig liðlangan daginn. 4Drottinn, leyfðu mér að gleðjast því að ég tilbið þig einan. 5Drottinn, þú ert mildur og góður og fús að fyrirgefa, gæskuríkur við alla sem ákalla þig. 6Heyr þú bæn mína Drottinn, því að ég ákalla þig í neyð minni. 7Þegar ég er í vanda staddur hrópa ég til þín því að þú hjálpar mér. 8Enginn hinna heiðnu guða stenst samjöfnuð við þig! Þín verk eru engu lík! 9Þjóðirnar – þú skapaðir þær allar – munu koma og lúta þér. Þær munu lofa þitt háa og heilaga nafn 10því að þú ert mikill og gerir furðuverk. Þú einn ert Guð! 11Sýndu mér, Drottinn, hvert þú vilt senda mig og þangað mun ég fara, því það er vegur sannleikans. Ó, að ég gæti tignað þig af heilu hjarta og hreinni samvisku! 12Ég lofa þig Drottinn Guð minn af öllu hjarta. Ég vil vegsama nafn þitt að eilífu. 13Mikill er kærleikur þinn! Þú ert mér alltaf svo góður! Þú frelsaðir mig úr djúpi heljar. 14Ofstopamenn rísa gegn mér. Guðlaus illmenni vilja ryðja mér burt. 15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur Guð, seinn til reiði, langlyndur og trúr. 16Líttu til mín í náð og styrktu mig. Ég er þjónn þinn, frelsaðu mig. 17Gefðu mér tákn um að þú elskir mig. Þegar óvinir mínir sjá það, munu þeir blygðast sín því að þú hjálpar mér og huggar mig.
Copyright information for
IslLO