‏ Psalms 87

1 2Hátt á hinu heilaga fjalli, stendur Jerúsalem, borg Guðs – borgin sem hann elskar öllum borgum framar.

3Vel er um þig talað, þú borg Guðs! 4Ef ég í vinahópi minnist á Egyptaland eða Babýlon, Filisteu eða Týrus eða hið fjarlæga Bláland, þá hrósa þeir sér sem fæddir eru á þessum stöðum. 5En mestur heiður fylgir Jerúsalem! Hún er móðirin og gott er að vera fæddur þar! Hann, hinn hæsti Guð, mun sjálfur vernda hana.

6Þegar Drottinn lítur yfir þjóðskrárnar, mun hann merkja við þá sem hér eru fæddir!

7Á hátíðum og tyllidögum munu menn syngja: „Jerúsalem, uppsprettur lífs míns eru í þér!“
Copyright information for IslLO