Psalms 89
1 ▼▼89:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼89:1 í flestum biblíum.
Ég vil syngja um miskunn Drottins að eilífu! Ungir sem gamlir skulu fá að heyra um trúfesti þína. 3 ▼▼89:2 í flestum biblíum.
Elska þín og náð vara að eilífu og trúfesti þín stendur óhögguð eins og himinninn. 4 ▼▼89:3 í flestum biblíum.
– 5 ▼▼89:4 í flestum biblíum.
Svo segir Drottinn Guð: „Ég hef gert sáttmála við Davíð, minn útvalda þjón. Ég hef unnið þann eið, að afkomendur hans skuli sitja á konungsstóli héðan í frá og að eilífu!“ 6 ▼▼89:5 í flestum biblíum.
Himinninn lofi máttarverk þín, Drottinn og herskarar englanna vegsami trúfesti þína. 7 ▼▼89:6 í flestum biblíum.
Því að hver á himnum kemst í samjöfnuð við Guð? Hinn mesti meðal englanna, hver er hann við hlið Drottins?! 8 ▼▼89:7 í flestum biblíum.
Hinir voldugu englar nálgast hann með ótta og virðingu. Hann er ægilegur í þeirra augum. 9 ▼▼89:8 í flestum biblíum.
Drottinn, þú konungur hinna himnesku hersveita, enginn kemst í samjöfnuð við þig! Trúfestin er einkenni þitt! 10 ▼▼89:9 í flestum biblíum.
Þú hefur hemil á ofstopa hafsins, stöðvar óveðursöldur. Með einu orði lægir þú þær. 11 ▼▼89:10 í flestum biblíum.
Þú rotaðir skrímslið, það lá marflatt – og tvístraðir óvinum þínum með undramætti. 12 ▼▼89:11 í flestum biblíum.
Himinninn og jörðin, allt er það þitt. Þú skapaðir það. 13 ▼▼89:12 í flestum biblíum.
Þú skapaðir norðrið og suðrið líka. Tabor og Hermon kætast, hin háu fjöll, sem hönd þín gjörði. 14 ▼▼89:13 í flestum biblíum.
Mikill er máttur þinn! Hægri hönd þín er upphafin í mætti og dýrð! 15 ▼▼89:14 í flestum biblíum.
– 16 ▼▼89:15 í flestum biblíum.
Tvær eru undirstöður hásætis þíns: Réttvísi og réttlæti, og miskunn og trúfesti eru fylgdarsveinar þínir. Sælir eru þeir sem heyra fagnaðarópið – þeir sem ganga í ljósinu sem stafar frá Drottni. 17 ▼▼89:16 í flestum biblíum.
Þín vegna gleðjast þeir alla daga og fagna yfir þínum réttlátu verkum. 18 ▼▼89:17 í flestum biblíum.
Þú ert styrkur þeirra. Þetta er undursamlegt! Já, við hressumst og gleðjumst því við vitum að þú hefur velþóknun á okkur! 19 ▼▼89:18 í flestum biblíum.
Sjálfur Drottinn er okkar vörn og hann, hinn heilagi í Ísrael – sjálfur Guð – hefur gefið okkur konung. 20 ▼▼89:19 í flestum biblíum.
Þú talaðir við spámann þinn í sýn og sagðir: „Ég hef fundið rétta manninn meðal fólksins, hann skal verða konungur! 21 ▼▼89:20 í flestum biblíum.
Það er Davíð, þjónn minn! Ég hef smurt hann minni heilögu olíu. 22 ▼▼89:21 í flestum biblíum.
Ég vil veita honum kraft og styrkja hann á göngunni. 23 ▼▼89:22 í flestum biblíum.
Óvinir hans skulu ekki fella hann, né illmennin kúga hann. 24 ▼▼89:23 í flestum biblíum.
Ég mun láta hann sjá er ég eyði óvinum hans og þurrka út hatursmenn hans. 25 ▼▼89:24 í flestum biblíum.
Ég mun stöðugt vernda hann og blessa og umvefja hann elsku minni. Mín vegna mun hann verða mikill. 26 ▼▼89:25 í flestum biblíum.
Ríki hans mun ná frá Miðjarðarhafi til Evfratfljóts. 27 ▼▼89:26 í flestum biblíum.
Hann mun segja við mig: „Þú ert faðir minn, Guð minn, klettur hjálpræðis míns.“ 28 ▼▼89:27 í flestum biblíum.
Ég mun líta á hann sem frumgetinn son minn og gera hann fremstan meðal konunga jarðarinnar. 29 ▼▼89:28 í flestum biblíum.
Ég mun elska hann að eilífu og vera honum góður. Ég mun halda sáttmála minn við hann að eilífu. 30 ▼▼89:29 í flestum biblíum.
Hann mun aldrei skorta erfingja og hásæti hans mun standa um eilífð eins og himinninn. 31 ▼▼89:30 í flestum biblíum.
– 32 ▼▼89:31 í flestum biblíum.
– 33 ▼▼89:32 í flestum biblíum.
▼▼Texti vers(s) 33 hefur verið sameinaður þessu versi.
▼▼Texti vers(s) 33 hefur verið sameinaður þessu versi.
Ef afkomendur hans hafna lögmáli mínu og óhlýðnast mér, þá mun ég hegna þeim, 34 ▼▼89:33 í flestum biblíum.
en aldrei mun ég þó hætta að miskunna þeim, né bregðast loforði mínu. 35 ▼▼89:34 í flestum biblíum.
Nei, sáttmála minn mun ég alls ekki rjúfa. Ekkert orða minna tek ég aftur. 36 ▼▼89:35 í flestum biblíum.
– 37 ▼▼89:36 í flestum biblíum.
Ég hef heitið Davíð því (og hinn heilagi Guð talar sannleika) að konungsætt hans mun vara um aldir alda, já rétt eins og sólin! 38 ▼▼89:37 í flestum biblíum.
Konungdómur hans skal standa að eilífu eins og tunglið, – trúfasta vitnið á himninum!“ 39 ▼▼89:38 í flestum biblíum.
En, – hvers vegna hefur þú þá útskúfað mér?! Hafnað þeim sem þú valdir til konungs? 40 ▼▼89:39 í flestum biblíum.
Hefur þú rofið sáttmálann við hann? Þú sem kastaðir kórónu hans í skítinn! 41 ▼▼89:40 í flestum biblíum.
Múra hans hefur þú brotið og rifið niður varnarvirkin. 42 ▼▼89:41 í flestum biblíum.
Allir vegfarendur ræna hann. Hann er til háðungar nágrönnum sínum. 43 ▼▼89:42 í flestum biblíum.
Þú magnaðir óvini hans gegn honum, og nú kætast þeir! 44 ▼▼89:43 í flestum biblíum.
Þú slóst sverð hans til jarðar og neitaðir honum um hjálp í bardaganum. 45 ▼▼89:44 í flestum biblíum.
Þú hefur bundið enda á vegsemd hans og hrint hásæti hans um koll. 46 ▼▼89:45 í flestum biblíum.
Hann lítur út sem öldungur þótt ungur sé, og það er af þínum völdum. Þú hefur hulið hann skömm. 47 ▼▼89:46 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, hve lengi á þetta ástand að vara? Ætlar þú að fela þig fyrir mér að eilífu? Hve lengi á reiði þín að brenna? 48 ▼▼89:47 í flestum biblíum.
Mundu hve mannsævin er stutt og að verk okkar flestra eru hégómleg og smá. 49 ▼▼89:48 í flestum biblíum.
Enginn maður lifir endalaust. Öll deyjum við að lokum. Og hver getur stigið upp úr gröf sinni? 50 ▼▼89:49 í flestum biblíum.
Drottinn, hvar er nú kærleikur þinn til mín? Hvar er gæskan sem þú lofaðir Davíð með eiði? 51 ▼▼89:50 í flestum biblíum.
Veistu það, Drottinn, að öll þjóðin hæðist að mér! 52 ▼▼89:51 í flestum biblíum.
Óvinir þínir spotta mig, manninn sem þú útvaldir til konungs. 53 ▼▼89:52 í flestum biblíum.
En þrátt fyrir allt og allt, sé Drottinn lofaður um eilífð! Amen, amen.
Copyright information for
IslLO