Psalms 91
1Sæll er sá sem nýtur verndar hins hæsta og hvílir í skjóli hins almáttuga, 2sá sem getur sagt við Drottin: „Þú ert skjól mitt og vörn! Þú ert minn Guð, ég treysti þér!“ 3Hann frelsar þig úr snörunni og bjargar þér undan plágunni. 4Hann mun skýla þér undir vængjum sínum. Þar muntu finna öruggt skjól! Hann hefur lofað að vernda þig og frelsa. 5Nú þarftu ekki lengur að óttast ógnir myrkursins, né örina sem þýtur að morgni. 6Heldur ekki drepsótt næturinnar né skelfingu um hábjartan dag. 7Þótt þúsund falli mér við hlið og tíu þúsund mér til hægri handar, þá mun hið illa ekki ná til mín. 8Ég mun horfa á þegar óguðlegum er refsað en sjálfur vera óhultur, 9því að Drottinn er skjól mitt! Ég hef valið hinn hæsta Guð mér til varnar. 10Hvernig ætti þá ógæfa að yfirbuga mig eða plága að nálgast hús mitt? 11Eins skipar hann englum sínum að vernda þig, hvar sem þú ert. 12Þeir munu styðja þig á göngunni og forða þér frá hrösun. 13Þótt þú mætir ljóni eða snák, þá er ekkert að óttast – þú munt jafnvel troða þau fótum! 14Hefur Drottinn ekki sagt: „Vegna þess að þú elskar mig, mun ég frelsa þig. Ég bjarga þér af því að þú þekkir mig og veist að mér er óhætt að treysta. 15Þegar þú kallar á mig, svara ég þér. Ég er með þér á hættustund, frelsa þig og held uppi heiðri þínum. 16Ég mun gefa þér langa og góða ævi og láta þig sjá hjálpræði mitt.“
Copyright information for
IslLO