Psalms 94
1– 2Drottinn, þú ert Guð hefndarinnar – sá Guð sem réttir hlut þeirra sem ranglæti eru beittir. Láttu dýrð þína birtast. Rís upp, þú dómari jarðar. Refsaðu ofstopamönnum fyrir illverk þeirra. 3Drottinn, hve lengi eiga óguðlegir að hrósa sigri? 4Þeir eru að springa af monti! Hlustaðu á grobbið í þeim! 5Drottinn, líttu á hvernig þeir kúga þjóð þína og kvelja fólkið sem þú elskar. 6– 7Þeir myrða ekkjur og munaðarleysingja og líka útlendinga sem hér hafa sest að. „Drottinn sér þetta ekki,“segja þeir, „hann lætur sér fátt um finnast.“ 8Heimskingjar! 9Haldið þið að Guð sé blindur og heyrnarlaus, hann sem skapar bæði augu og eyru! 10Hann refsar þjóðunum – og nú er komið að ykkur. Enginn hlutur er honum hulinn. Eins og hann viti ekki hvað þið hafið gert! 11Drottinn þekkir skammsýni og hégómleika mannanna 12– 13og því agar hann okkur til góðs. Það gerir hann til þess að við göngum á hans vegum og gefumst ekki upp í mótlæti. 14Drottinn afneitar ekki lýð sínum né yfirgefur þjóð sína. 15Dómar hans eru réttlátir og fylgjendur hans fagna af hreinu hjarta. 16Hver vill vernda mig fyrir illgjörðamönnum? Hver vill vera skjöldur minn? 17Án Drottins væri ég dauðans matur. 18Ég æpti: „Drottinn, ég er að hrapa!“og af gæsku sinni frelsaði hann mig. 19Drottinn, þegar efasemdir ásækja mig og hjarta mitt er fullt af angist, þá gefðu mér frið þinn og endurnýjaðu gleði mína. 20Vilt þú vernda og viðhalda spilltri valdsstjórn sem hallar réttlætinu? Leyfir þú slíkt? 21– 22Hefur þú þóknun á þeim sem dæma saklausa til dauða? Nei! Drottinn, Guð minn, er vígi mitt, kletturinn þar sem ég leita skjóls. 23Guð lætur syndir óguðlegra koma þeim sjálfum í koll. Illverk þeirra verða þeim að falli.
Copyright information for
IslLO