Psalms 95
1Komið! Við skulum lofsyngja Drottni! Hrópum gleðióp til heiðurs kletti hjálpræðisins! 2Komum fram fyrir hann með þakkargjörð, syngjum honum lofgjörðarsálm. 3Því að Drottinn er mikill Guð og æðri öllum sem menn kalla guði. 4Hann hefur upphugsað djúp jarðar og hannað hin hæstu fjöll. 5Hann gerði hafið og myndaði þurrlendið, allt er hans! 6Komið! Föllum fram fyrir Drottni, skapara okkar, 7því að hann er okkar Guð. Við erum hjörðin hans og hann er hirðir okkar. Ó, að þið vilduð heyra kall hans í dag og koma til hans. 8Forherðið ekki hjörtu ykkar eins og Ísraelsmenn gerðu hjá Meriba og Massa í eyðimörkinni. 9Þar drógu feður ykkar orð mín í efa – sömu menn og sáu mig gera mörg kraftaverk. Þeir freistuðu mín, kvörtuðu og reyndu á þolinmæði mína. 10„Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð,“segir Drottinn Guð. „Hjörtu þeirra allra voru langt í burtu frá mér og ekki vildu þeir halda lög mín. 11Þá hét ég því að þeir skyldu aldrei komast inn í fyrirheitna landið, staðinn sem ég hafði ætlað þeim til hvíldar.“
Copyright information for
IslLO