Psalms 98
1Syngið nýjan söng fyrir Drottin því að hann hefur unnið dásamlegt verk! Hann er sigursæll í mætti sínum og heilagleika. 2Hann hefur tilkynnt sigur sinn – birt þjóðunum réttlæti sitt. 3Hann hefur miskunnað lýð sínum, haldið loforð sín til Ísrael. Allur heimurinn sá er Guð bjargaði þjóð sinni. 4Þess vegna hefja löndin fagnaðarsöng, syngja og lofa hann af öllu hjarta. 5Syngið Drottni við undirleik hörpu. 6Blásið í lúðra og básúnur gjalli! Hljómsveitin spili lofgjörðarlag. Hyllið Drottin, konunginn! 7Hafið drynji og lofi Drottin! Jörðin og íbúar hennar reki upp fagnaðaróp! 8– 9Fossarnir klappi lof í lófa og klettarnir syngi gleðisöng, því að Drottinn mun dæma heiminn í réttlæti sínu og af réttvísi.
Copyright information for
IslLO